Kirkjuritið - 01.07.1957, Blaðsíða 22
308
KIRKJURITIÐ
Loks er unnið að endurbótum á prestsseturshúsunum að
Mælifelli, Hofsósi, Höskuldsstöðum og Melstað.
Umsjón með byggingum þessum hefir Björn Rögnvaldsson
húsasmiðameistari.
Húsameistari ríkisins sér um byggingaframkvæmdirnar á
Hrafnseyri, heimavistarskóla með íbúð fyrir prest.
Nokkrir prestar hafa ráðizt í það að koma sér upp útihúsum
og fengið talsverðan styrk til þess. Eru sum þessara húsa stór
og vönduð.
Reynt verður til þess að fá hækkun á styrknum til byggingar
prestsseturshúsa. Er þess ekki vanþörf sökum mikillar hækkun-
ar á byggingarkostnaði.
Ur skýrslu söngmálastjóra.
Skýrsla söngmálastjóra telur stofnaða 2 kirkjukóra á tímabil-
inu frá 1. júní f. á. til 1. júní þ. á., annan í Djúpavogssókn, hinn
í Nessókn í Suður-Þingeyjarsýslu. Hafa þá alls verið stofnaðir
á landinu 187 kirkjukórar, þar af tveir barnakórar. Skyldi barna-
kórum fjölga sem mest og þeir verða til aðstoðar við sem flest-
ar kirkjur á landinu.
Nokkrir kórar aðrir syngja við messur. Ennfremur fjölgaj'
þeim kirkjukórum, sem annast ekki aðeins söng við kirkjulegar
athafnir heldur einnig á öðrum samkomum safnaðanna.
Alls hefir 51 kirkjukór sungið opinberlega á árinu 96 sinn-
um, auk söngs við kirkjulegar athafnir. Eru þær söngsamkom-
ur nú orðnar 1370 frá því er söngmálastjóri tók til starfa árið
1941.
Þessi fjögur kirkjukórasambönd héldu sitt söngmótið hvert:
1. Kirkjukórasamband S.-Þingeyjarprófastsdæmis að Skjól-
brekku í Mývatnssveit sunnudaginn 10. júní. Þáttakendur
8 kirkjukórar, um 200 manns.
2. Kirkjukórasamband llangárvallaprófastsdæmis að félags-
heimilinu Gunnarshólma í Landeyjum sunnudaginn 18.
nóvember. Þátttakendur 8 kirkjukórar, um 140 manns.
3. Kirkjukórasamband V.-Skaftafellsprófastsdæmis að Vík í