Gelmir


Gelmir - 01.04.1954, Page 6

Gelmir - 01.04.1954, Page 6
að mestu, og skarkalinn er hljóðnaður. Rykmökkurinn, sem yfir vagnin- um sveif fyrr um daginn, er til hvíldar lagstur. Skrölt bifreiðarinnar rýf ur kvöldkyrrðina með sömu áhrifum og þegar sót fellur á hreina mjöll. Ég fvrirverð mig og tek að kyrja skammgilt dægurlag. Vegurinn sveigir niður móinn, liggur yfir grundina og hjá rammgerðu sauðfj árvarnar- hliði; við sporð veglegu brúarinnar, sem yfir kolmórautt fljótið liggur, siöðvum við bifreiðina. Gamall maður kemur út í dyr kofans, sem við hliðið stendur, og op.iar það með þræði, er liggur uppað kofadyrunum. Sundurgerðar gætir í klæðnaði hans og stingur litríkt hálsbindið mjög í stúf við sauðsvarta lopapeysuna. Hann veifar brosandi til okkar og virð- ist ánægður með hlulskipti sitt. Við gjöldum í sömu mynt. — Vegurinn liggur suður bakkann hinum megin, en vart höfum við komizt tvo tugi metra frá brúnni, þegar við kveður hár hvcllur og Jón stigur skjótt á hemilinn. „Hvert í hoppandi! Þetta var punktering,“ tautar hann um leið og hann stekkur útúr. Ég fylgist með honum. Annað afturhjólið hefur sprungið og nú er hafizt handa til viðgerða. — Hófahljóð glymur á brúnni. Við lítum upp og sjáum gráan gamallegan áhurðarhest koma út á hana. Á baki hans situr drenghnokki í ljósum samfestingi, og ber hann ákaft fótastokkinn. — Þeir eru komnir yfir um. Drergurinn beinir hest- inum útaf malarveginum á troðningana, er liggja samsíða honum. Hann hvetur jálkinn hreykinn og heilsar okkur glaðlega, um leið og þá ber framhjá. Við stöndum hljóðir á vegarbrúninni og heyrum hófadyninn deyja úl i grasigrónum götum. B. Þ. G. I N MEMORIAM UTREKSTRAR 6. BEKKJAR (PAX VOBIS CUM) 6 GELMIR

x

Gelmir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gelmir
https://timarit.is/publication/454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.