Epilogus - 01.04.1955, Blaðsíða 6

Epilogus - 01.04.1955, Blaðsíða 6
 E P I L O G U S Iliigieiðing um tízknna „Allt er í heiminum hverfult“ segir gam- alt máltæki. Og víst er það, að þetta á ekki betur við neilt af fyrirbrigðum daglega lífs- ins en einmitt hina svokölluðu tízku. Tízk- an er harla vítt og teygjanlegt hugtak, ef kryfja á það til mergjar. Tízkan, spegill tíð- arandans, birtist okkur í svo ótal marg- breytilegum myndum, að við erum hætt að gera okkur fyllilega grein fyrir,hvað flokka má undir hana. Þessvegna álít ég, að mér sé með öllu ofviða að ræða um tízkuna al- tnennt. Eg kýs frekar að sníða mér þrengri stakk og víkja að því sígilda deiluefni: klæðnaði og tízkuæði kvenfólksins. Á þá grein tízkunnar hefur verið litið, og þá sérstaklega í seinni tíð, sem tákn alls tízkubrölts. Allt frá því, að Eva spókaði sig í Eden forðum daga íklædd laufblaði einu saman, hefur konan varið mest öllu lífi sínu í að dubha upp á þetta vesæla rifbein Ad- ams gamla. Æði þetta hefur gengið í bylgj- um yfir hrjáð mannkynið öld eftir öld. Kvenfólkið gengur stöðugt með sýkina, en er alveg ódrepandi. Aftur á móti virðist karlmaðurinn liafa minni viðnámsþrótt, enda hefur hann legið hálfgerða banalegu nú um langt skeið. Svo mikið er víst, að dómgreind hans hefur sljóvgast svo mjög, að nú þekkir hann ekki sitt gamla rifbein. Já, þannig hafa færustu hugvits- og upp- finningamenn allra tíma glímt við að finna upp eitthvað nýtt og fljótvirkara deyfilyf á karhnanninn. Og svo þegar þessir andans menn hafa verið þurrausnir hafa þeir bara byrjað upp á nýtt. Þannig hefur lítill rass verið í tízku eina öldina, en stór hina. Og annað veifið þóttu þær fegurstar, sem lítil eða jafnvel engin brjóst höfðu, en hitt veif- ið þurftu þær að hlaða á sig kartöflupok- um, til þess að geta talizt samkvæmishæfar. Nú þykir það afar „smart“ eins og kallað er, að kvenfólk gangi í hálfsíðum buxum. En hvað gerðu hinar lítt dúðuðu liirðmeyj- ar drottningarinnar á Englandi í Gaman- hréfi Jónasar, þegar þær komu í spegilfagr- an hlaðvarpann við höll konungsins íFrakk- landi? En sem betur fer átti kóngsi sinn Di- or, sem dreifði ösku á völlinn. Já, þessi Diorastétt, sem er einhverskon- ar pilsfalda og gúmíbrjósta akademía hef- ur löngum verið þarfur gripur, eða hitt þó heldur. Hún hefur unnið eins og kjarnorku- ver að sprengjuframleiðslu og framleitt sprengjur, sem eru miklu hættulegri en kjarnorkusprengjur. Sprengjur, sem ætlað er að afvegaleiða mannkynið, hinar svo- nefndu geislavirku kynorkubombur. í dag eiga þessar kynorkubombur óhugnanlega mikil ítök í sálum okkar. Við opnum varla blað né bók án þess að rekast á myndir eða langt lesmál um þessar útvöldu persónur. Fólk flykkist í kvikmyndahúsin, til þess að sjá þær, og karlmenn verða eins og saltfisk- ar augliti til auglitis við þær og ætu jafnvel hafragraut, ef svo biði. Allt er það vegna þessarar dularfullu sjómannslegu bílveiki, sem geislavirkunin veldur. Og ekki nóg með það. Svo ganga allir flokkar kvenfólks dyggilega á eftir, og jafnvel smá púðurkerl- ingar vilja verða kynorkubombur. Þannig er ekki óalgengt að sjá á vorum dögum litla Framh. á 9. síÖu.

x

Epilogus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Epilogus
https://timarit.is/publication/455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.