Epilogus - 01.04.1955, Blaðsíða 10

Epilogus - 01.04.1955, Blaðsíða 10
10 E P I L ◦ G U S - Tv«r tilvitnaiiir - UM ELLINA „As young as Your Faith“ eftir Mac Arthur fyrrum hershöfðingja. „Þú ert jafn ungur og trú þín — eins gamall eins og efi þinn — jafn ungur og sjálfstraust þitt — eins gamall og ótti þinn — jafn ungur og vonir þínar — eins gamall og vonleysi þitt. I miðju livers lijarta er móttökusalur — eins lengi og það tekur á móti skilaboðum fegurðar — vonar — fögnuðar og hugrekk- is ertu ungur í anda. Þegar allir þræðir liafa rofnað og lijarta þitt er þakið ísbreiðum svartsýni og rudda- skapar — þá, og aðeins þá, ertu orðinn gamall.“ ÚR DE SENECTUTE eftir Cicero. „Því að þegar ég íhuga það með sjálfum mér, hversvegna ellin virðist aum, finn ég fjórar orsakir: Eina, sem kallar frá almenn- um störfum, aðra, sem veikir líkamann, þriðju, að hun sviptir mann öllum nautn- um, þá fjórðu, að hún sé ekki fjarlæg graf- arbakkanum. Látum okkur nú, ef okkur þóknast, líta á hverja fyrir sig af þessum ástæðum, hve mikilvægar þær séu og hversu réttlátar.“ Spurningin er aðeins: Hvort verður það Cicero eða Mac Arthur, sem tekinn verður til stúdentsprófs í Menntaskólanum á Akur- eyri árið 2000. H. Osig'nr Nu nýverið hefur hirzt á prenti smásagan „Ósigur“ eftir Niðfara. Höfundur ætlar sýnilega að spinna tragiskan söguþráð, enda liggur efnið — hörmung hins hvíta dauða — mjög opið fyrir, svo auðveldlega mætti semja sæmilega sögu. En Niðfari er hald- inn annarlegri sótt, sem sé taumlausu sjálfs- áliti, jafnvel monti. Þelta verður til þess, að mest öll sagan fjallar um Niðfara sjálfan, en hin ólánssama söguhetja hverfur alger- lega í skuggann, nema rétt síðast. Hvað varðar lesendur urn næturlestur Niðfara í hók eftir Fallada? Þar er brugðið upp mynd, sem gegnir engu hlutverki í sög- unni um örlög sjúklingsins og er aðeins hók- menntasnohlj, sem einstaka ungmenn ganga með. Þessum bókmenntakvilla fvlgir geysi- legur umsláttur og velþroskuð sjálfvirðing, og verður þetta öllum venjulegum mönnum mjög hvimleitt. Niðfari gerir sig sekan um hróplega smekkleysu, þegar hann talar um „verðlitlar konur“. Slíkur skortur á liátt- vísi er aldrei fyndinn á prenti, þó hún sé ef til vill gjaldgeng vara meðal vina Niðfara. Sagan „Osigur“ táknar ósigur Niðfara sem skálds, en með meiri sjálfsaga og skýrari hugsun gæti Niðfari skrifað sögu, en aldrei góða. A.

x

Epilogus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Epilogus
https://timarit.is/publication/455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.