Epilogus

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Epilogus - 01.04.1955, Qupperneq 8

Epilogus - 01.04.1955, Qupperneq 8
8 E P ILOG U S Viðlal við skólameistara Blaðið átti viðtal við' skólameistara, hr. Þórarinn Björnsson, fyrir skömmu og leit- aði fregna um eitt og annað, sem nemendur og skólann varðar. Skólameistari veitti fúslega eftirfarandi upplýsingar um vænt- anleg próf: VI. bekkur fer í upplestrarleyfi 23. apríl, og þann dag verður Dimittendakvöldið. Síðasta stúdentsprófið verður 15. júní, en skólanum sagt upp 17. júní, svo sem venja er til. V. bekkur verður lengst allra bekkja í tímum, eða allt fram til 6. maí. IV. bekk- ur hættir tímasókn um næstu mánaðarmót, eitt próf verður hjá IV. og V. bekk eftir hvítasunnu, en þeir nemendur, sem komast vilja heim fyrir hvítasunnu gela tekið skyndipróf. III. bekkur sækir skóla fram til mánaðarmóta apríl—maí, en lýkur öllum prófum fyrir hvítasunnu. Landsprófsdeild- in fór í upplestrarleyfi núna um helgina. Síðasta próf þeirra, náttúrufræðin, verður eftir hvítasunnu. I. og II. bekkur ljúka sínum prófum um 10. eða 12. maí. Skólameistari minntist á, að nokkrir nemendur og vinir Sigurðar heitins Guð- mundssonar skólameistara hefðu ákveðið að gefa skólanum brjóstlíkön af Sigurði Guðmundssyni og frú Halldóru Ólafsdótt- ur, lconu hans. Líkönin munu verða á ein- um stöpli og staðsett norðan og ofanvert við skólann. Asmundur Sveinsson mynd- höggvari vinnur nú að þessu verki, en af- steypur verða gerðar erlendis. Þá hefir komið til orða, að saga Möðru- vallaskóla, sem Sigurður Guðmundsson skólameistari ritaði í sambandi við 50 ára afmæli skólans árið 1930, verði gefin út. Bók þessari mun sennilega fylgja nem- endatal. Varðandi framkvæmdir við hús skólans á sumri komanda tjáði skólameistari blað- inu, að ákveðið væri, að ganga frá nýja Heimavistarhúsinu að utan, en sennilega verður ekki hægt að gera meira, sökum þess hve fjárveiting er naum. Aðeins 250 þús. kr. á fjárlögum yfirstandandi árs. /■ E PILOG U S 1. tbl. 1. árg. Útgcfcndur: Nokkrir Menntskælingar Abyrgðarmaður: Brynjólfur Sveinsson. Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.

x

Epilogus

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Epilogus
https://timarit.is/publication/455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.