Fríkirkjan - 01.10.1899, Blaðsíða 15
158
fundir á ýmsum stöbum þar vestra, semsé i kirkju Selkirk-
safnaðar og fyrstu lút. kirkju í Winnipeg 16. og 17. dag nóvem-
bermánaðar; þá í kirkjum Vidalíns- Víkur- og Garðarsafnaða í
N. Dak. 19., 23. og 24. dag desembermánaðar; ennfremur í
Minneota, Minn. 11. dag desembermánaðar og i kirkju Argyle-
safnaða 24. og 25. dag janúarmánaðar. Á hinum síðasta fundi,
sem stóð yfir tvo daga, var umræðuefnið fyrra daginn: „Hvað
eigum vér að lesa?“ og síðara daginn: „Lúterska kirkjan og
aðrar kirkjur"; en á öllum hinum fundunum var umræðu-
efnið: „Sannur kristindómur.1
Nú hafa, svo sem kunnugt er, tveir af vestanprestunum
verið hér uppi á íslandi í sumar í kynnisferð, nfl. forseti og
varaforseti kirkjufélagsins, síra Jón Bjarnason og síra Friðrik
Bergmann, og munu þeir hafa komið af stað þessum trúar-
samtalsfundi, sem allir skynberandi menn ættu að kunna þeim
þökk fyrir, því engum getur dulizt að frjálsir umræðufundir
um trúarleg og kirkjuleg málefni geta haft mikla þýðingu og
góðar afleiðingar, þegar mönnum lærist að fara rétt með þá.
Inngangstöluna hélt síra Jón Bjarnason, langt erindi og
snjallt. Síra Jón er þjóðkunnur maður fyrir áhuga á kilstin-
dóminum og andagipt sem rithöfundur og ræðumaður. Að
ólöstuðum öllum þeim, er á fundinum töluðu, má segja, að
hann og síra Friðrik Bergmann voru líflð og sálin í umræð-
unum; enda eru þeir nú orðnir slíkurn umræðum nokkuð
vanir, og hafa um langan aldur lifað í hinu heilnæma frí-
kirkjulopti fyrir vestan hafið.
Ræðumaður byrjaði á að geta um það með fáum orðum,
hvert væri umtalsefni fundarins, ni. kristindómurinn, hið mesta
umtalsefni, sem til væri eða hægt að hugsa sér; en svo væri
bætt við orðinu sannur, af þvi til væri í heiminum svo mikið
af ósönnum kristindómi. Eins og svo margar vörur á heims-
markaðinum væru falsaðar, eins væri kristindómurinn marg-
víslega falsaður, og fjölda margir létu sér nægja þennan fals-
aða kristindóm, því það væri svo fyrirhafnarlítið að eignast
hann, hann kostaði svo lítið. Á dögum Jesú Krists hefði
Gyðingdómurinn verið orðinn þannig falsaður, svo að það
1) „Sam.“ 14. árg. bls. 69.