Fríkirkjan - 01.11.1899, Blaðsíða 2
FET
MÁNAÐARllIT
TIL STUÐNINGS FRJÁLSRI KIRKJU OG FRJÁLSLYNDUM
KRISTINDÓMI
„Þér munuð þekkja sar\nlelkann, og sannleikurinn inun gjöra yður frjálsa.11— Kri stur.
1899.
NOYEMBER.
11. BLAÐ.
;l?crlai|.
ökg perla fögur finnst á raararbotni,
en. fegurst allra skín þó ein hjá drottni;
j'p~jc) hans kærleiks djúp ef kafar mannsins andi,
hann kemur með þá dýru perlu’ að landi.
Án þeirrar perlu allt er einskis virði,
og ekkert nema þung og fánýt byrði;
en eigirðu’ hana, annað, sem þér veitist,
þá óðar líka’ í dýrar perlur breytist.
Þann undra krapt sú eina perla heíur,
hún allt þitt líf með geisla skrúði vefur,
já, gjöiir þig að perlu prúðri’ og dýrri
og prýðir þig með drottins vegsemd skírri.
F>ví perlan, hún er iíf af drottins lífi
og ljós og friður mitt í heimsins kífi;
já, perlan, það er bjarta gleðin hreina
og himnesk ást, sem bót er allra meina.
Ef drottins perlu dýpst 1 sál þú geymir,
og drottins náð og kærleik aldrei gleymir,
þig sjálfan geymir guð í sínu hjarta —
og gott er þar sem perla dýr að skarta.