Fríkirkjan - 01.11.1899, Side 13
172
12. gr.
í safnaðarráði eru 2 menn auk prestsins, sem er formað-
ur þess. Þeir skulu kosnir til eins árs í senn og eru eigi
skyldir að taka á móti endurkosningu optar en tvisvar sinn-
um. Safnaðarráðið sér um andleg málefni safnaðarins, eink-
um fræðslu ungmenna og almennt siðferði.
13. gr.
Safnaðarfundi skal boða með viku fyrirvara með uppfest-
um auglýsingum, og aðalfund auk þess í nóvembernúmeri
„Fríkirkjunnar". Til fundar boðar presturinn ásamt formanni
safnaðarfulltrúanna.
14. gr.
Þá er fundur lögmætur, ef löglega er til lians boðað, og
mæti þar meiri hluti þeirra manna, er atkvæðisrótt eiga, þar
með talið allt safnaðarráðið og meiri hluti safnaðarfulltrúanna,
nema þeir séu sjúkir eða hafi önnur lögmæt forföll.
15. gr.
Vilji presturinn ekki lengur hafa á hendi forstöðu safnað-
arins, skal hann tilkynna formanni safnaðarfulltrúanna það
með missiris fyrirvara.
Með sama fyrirvara getur söfnuðurinn sagt prestinum upp,
ef meir en helmingur atkvæðisbæn-a safnaðarmanna greiðir at-
kvæði með þvi á almennum safnaðarfundi.
V. kafli.
Breytingar laga og viðaukar.
16. gr.
Breytingar á lögum þessum verða eigi bornar upp nema
á aðalfundi, og skulu úrslit jafnan bíða næsta aðalfundar. Til
þess að lagabreytingar nái fram að ganga, útheimtist að minnsta
kosti 8/4 atkvæða.
17. gr.
Viðauka-ákvarðanir, sem ekki koma í bága við safnaðar-
lögin, má gjöra á aukafundi, en á næsta aðalfundi skal skorið