Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 10

Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 10
170 „Drottni só lof og dýrð! þett.a var —■ þetta var — þetta var það eina, sem mig vantaði! fJau hafa ekki gleymt mér! það vermir sálu mína, það er balsam mínu gamla hjarta! Nú dey eg glaður. Lofa þú Drottin, sála min!“ * * * Gleðin yfir að sjá son sins gamla, kæra húsbónda, hafði veitt hinum deyjandi manni nokkurn mátt, en sá máttur þraút bráðum aptur. Hann hné máttvana á flet sitt og lokaði aug- unum. Yfir andlit hans leið hin duiarfulla, hátíðlega breyting, er bar vott um, að sál hans nálgaðist æðri heima. Hann tók að draga andann djúpt og með löngu millibili. Hið breiða brjóst hans gekk upp og niður. Það var sigur- vegara svipur á andliti hans. „Hver — hver — hver getur skilið oss frá kærleika Krists?“ sagði hann með veikri rödd, er benti á að dauðínn var nálægur, og með bros á vörum sér sofnaði hann. Georg var gagntekinn af hátiðárfúllri lotningu; honum fannst. þessi staður vera heilágur, en meðan hann var að veita hinum látna manni nábjargirnar, og reis á fætur frá flet- inu, þá var það aðeins ein hugsun, er fyliti huga hans, hugsun S9m hinn gamli vinur hans hafði látið í ljósi: „Hvílik biess- un er að vera kristinn!" Þegar hann reis á fætur, sá hann að Legree stóð þar nærri, ólundarlegur á svip. Georg vafði yfirhöfn sinni um iíkið: „Drengir," sagði hann með valdmannslegum róm við svertíngja nokkra, er stóðu þar og horfðu á lík hins látna, „hjálpið þið mér til að bera hann á vagninn, og lánið þið mér reku“. Einn þeirra hljóp eptir rekunni, en hinir hjálpuðu Georg með að bera líkið á vagninn. Georg mælti ekki orð til Legrees, og leit ekki á hann, þar sem hann stóð og raulaði iag fyrir munni sór, eins og ekkert væri um að vera, en skipti sér þó ekkert af því þótt G'eorg byði svertihgjunum að hjálpasér; hann gekk ólundarlega á eptir þeim, þangað sem vagninn stóð við húsdyrnar. Hinumegin við landamerki plantekrunnar var sandhóíl, sem nokkur tré skyggðu á. Þar tóku þoir gröfina.

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.