Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 13

Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 13
173 þessu frjálsir menn og frjálsar konur. Eptir þetta borga eg ybur kaup fyrir vinnu yðar, eptir þvi sem oss semur um. Kosturinn við þetta er sá, að það verður ekki hægt að taka yður og selja, þó svo færi að mín misti við eða eg lenti í skulda kröggum. Eg ætla mér að halda búskapnum áfram í sama horfi, sem að undanförnu hefur verið, og kenna yður jafnframt það, sem þér munuð ef til vill þurfa nokkurn tíma til að læra — hvernig þér eigið að fara með réttindi þau, er eg hef nú gefið yður, sem frjálsir menn og frjálsar konur. Eg ætlast tii þess af yður öllum, að þér verðið iðin og námfús, og eg vona til guðs að eg verði trúr í starfi mínu og fús að leið- beina yður. Og nu, vinir minir; litið upp og þakkið guði fyr- ir blessun frelsisins. Þér munið öll eptir liinum góða og dygga Tómasi frænda“.—Georg lýsti þessu næst með fáum orðum andláti hins gamla manns, bar þeim öllum hina hinnstu kærleiks kveðju hans og mælti að endingu: „Það var á leiði hans, vinir mín- ir, að eg hét því frammi fyrir augliti drottins, að eg skyldi aldrei framar þræl eiga, og að enginn maður skyldi fyrir mina sök þurfa að eiga það á hættu að verða skilinn frá heimili og vinum og deyja einmana og yfirgefinn á fjarlægri plantekru, eins og hann gjörði. Pegar þér því fagnið yfir frelsi yðar, þá minnist þess jafnan, að þér eigið það að þakka þessum góða, gamla manni; og látið konu hans og börn njóta þess. Hugsið um frelsi yðar i hvert sinn er þér htið á kof- ann hans Tómasar frænda, og látið það vera yður upphvatn- ing og áminningum, að feta í fótspor hans og vera eins ráð- vönd og trú og kristin, eins og hann var.“ Kirkjumálin á alþingi 1901. Auk þess, sem getið er um í síðasta tölublaði, komu eigi svo fá önnur málefni fyrir á þinginu, er beinlínis eða ó- beinlínis mega teljast til kii’kjulegra mála. Það voru gefin út lög um almannafrið á helgidögum þjókirkjunnar í stað hinnar gömlu helgidagatilskipunar. Ekki

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.