Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 14

Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 14
174 teljum vér þau lög að neinu merkileg. Þau eru mest.megnis fyrir lögreglustjórana, og munu naumast hafa mikil áhrif á kirkjulegt líf í landinu; enda ekki inikil breyting frá fyrri helgidagalögum. Þá voru og sett lög um kirkjugarða, sem auðsjáanlega áttu rót sina að rekja til ágreinings þess, er að undanförnu hefur átt sór stað út, af kirkjugarðinum i Reykjavík. Telja má það til kirkjulegra mála, er alþingi veitti á fjárlögunum 800 kr. skáldlaun til sira Valdemars Briem, þar sem þau eru vitanlega veitt fyrir sálma og bibliuljóð. En svo hefur þingið vist ætlað að sýna, að það væri ekki hlutdrægt í bibliuáttina, með því að veita öðrum manni skáldlaun, sem enginn bibliuelskari eða kristindómsvinur hefur verið í ijóða- gjörð sinni, nl. Þorsteini Erlingssyni. Er mælt að þeir hafi verið spyrtir svo gaumgæfilega saman á þinginu þeir „Valdi- hamar vizku og snildar" og „í>yrna“-J>orsteinn, sem væru þeir andlegir fóstbræður. Mælti það einhver, að þarna mætti sjá, hvort Kristur og Belial gætu ekki átt hlutskipti saman. f’á viijum vér minnast á eitt mál, sem rætt var um á þessu þingi og hefur opt áður komið inn á þing, það er málið um umsjón og fjárhald hinna svonefndu landsjóðskirkna. — Auk þess sem flestar kirkjur á landinu eru í raun og veru eign hins opinbera eða landsjóðsins, þá hafa lengi verið nokkr- ar kirkjur, sem i sjerstökum skilningi hafa verið eign iand- sjóðsins. Við þessar kirkjur hefur þingið jafnan viljað losast og fá hlutaðeigandi söfnuði til að taka þær að sjer. Ein af kirkjum þessum er kirkjan i Vestmannaeyjum, og eru eyjar þær eins í þessu tilliti eins og mörgu öðru ærið þungar á landsjóðnum. Kirkjur þær, sem nú var rætt um, voru þessar þrjár: 1. Langholtskirkja í Vestur-Skaptafells prófastsdæmi, og skyidi henni fylgja áiag að upphæð 3200 kr. 2. Þykkvabæjarklausturskirkja í sama próíastsdæmi, og skyldi henni fylgja álag að upphæð 1800 kr. svo og fjörur nokkrar, sem henni eru t.aldar. 3. Vestmannaeyjakirkja með 6500 króna álagi. Lög um þetta efni vöru afgreidd frá þinginu, en það segir

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.