Fríkirkjan - 01.01.1902, Blaðsíða 2

Fríkirkjan - 01.01.1902, Blaðsíða 2
2 Og gæzku þinnar geislar sjást, því gjörvöll þaðan streymir ást, sem dregur gylt og guðlegt band í gegnum dauðans skugga land. Þér vetur, sumar, vor og haust æ vegsemd rómar endalaust; þig lofar breidd og lengd og hæð, þig lofar hjartans dýpsta æð. Þín lofgjörð, guð, vor herra hár æ hljómi ný um gjörvöll ár; svo lengi nokkurt mælf er mál, þig mikli hugur, tunga, sál. ------<X>^0------ Um barna uppeldi eptir Otto Funcke. I. Minntu börnin Jnn á, að ]>au eru guðs ættar. „Ef eg kæmi til himnaríkis og hitti þar ekki. son minn, sem reyndar er orðinn gjörspilltur, en eg elska samt af öllu hjarta, þá mundi eg skella aptur hui ð himnarikis og fara með honum til helvítis", sagði geðmikil móðir, um leið og hún kom lít úr kirkju einni, þar sem talað hafði verið um himna- ríki og helvíti. Það var sjálfsagt ekki rétt sagt, en við get- um þó skilið að elskandi móðir getur komizt svo að orði. Góðar mæður og góðir feður geta ekki hugsað sér sælu, þar sem börnin þeirra eru ekki, og þau geta heldur ekki hugsað sér neina jarðneska hamingju án þess að börnin eigi hlutdeild i henni. Börnin eru hinn dýmætasti fjársjóður foreldranna. Staða og virðing veraldarinnar getur ekki bætt foreldrunum barna ólán4 Eg gleymi aldrei því, sem riki maðurinn sagði við mig, þar sem við stóðum við glugga, er vissi út að einni aðalgöt- unni i H.........Hann hafði fengið mér í hendur mikla pen- ingagjöf til góðgjörða fyrirtækis, og eg var að tala um, hversu

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.