Fríkirkjan - 01.01.1902, Blaðsíða 13
13
„Kennendur háskólans eru því óvanir, að þannig sé til þeirra
tala^.“ Sko, þar gægðist yfirlætið fram.
Þessu verða nú háskólakennararnir að venja sig af, ef
hinn lifandi söfnuður á að geta borið traust t.il undirbúnings
þsss, er prestarnir fá við háskólann; það verður að sstja ann-
að markmið fyrir menntun prestaefnanna. F’að er ekki gleymt,
að það var frá háskólanum með sinni skammarlegu biblíukritik
fyrir 100 árum, að það syndaflóð vantrúaðra piesta rann út,
er drekti trúarlifi þjóðarinnar og hefur gjört heimatrúboðið
nauðsynlegt, til þess að aptur mætti fram koma ný kynslóð
lifandi, trúaðra manna. Þá, fyrir 100 árum, kom þetta
aptan að söfnuðinum og að honum óvörum; innri missiónin,
með lifandi söfnuði sem afsprengi sínu, lætur eigi aptur hina
vantrúuðu biblíukritikar-presta koma sér i opna skjöldu.
Pví vér vitum að það, sem fjandinn feimnislaust ætlaði ser
fyrir 100 árum, og það, sem honum þá tókst með því að ráð-
ast á Nýjatestamentið með biblíukritikinni sinni, sem sé að
svipta frelsarann guðdómsljóma sínum og gjöra hann að
eintómum manni, það er hið sama sem nú verður endimark-
ið fyrir þessum „vélabrögðum djófulsins“, með þvi að ráðast að
eíns á hið gamla testamenti og gjöra orð þess vafasöm eða
jafnvel að beinni lýgi. Þegar drottinn vor Jesús aptur og
aptur skirskotar til þes*, er í gamlatestamentinu stendur, og
staðfestir það, en biblíukritikin lýsii' það lýgi, þá hverfur guð-
dómsljóminn aptur af frelsaranum, og annað verður ekki eptir
af honum en maður, sem var fákænn á margar lundir og lét
aptur og aptur á tálar dragast. En slika presta, sem eru
sýkt.ir af þessum ófögnuði, mun hinn lifandi söfnuður aldrei
kannast við sem presta drottins. Og hér mun innri missiónin
standa á verði og halda áfram að kalla til háskólans: ,.Á
hné fyrir bibliunni, þér háskólakennarar!"
(F. Beck: Erindringer fra mit Liv.]
Pannig talar þessi nýdáni danski prestaskörungur um
bibliukritikina. fað mundi alls eigi vera ofhermt, þó Vilh.
Beck væri kallaður „höfuðprestur" dönsku kirkjunnar á síð-
ustu tið. Svo sem kunnngt er, hefur einn af prestast.jett ís-