Fríkirkjan - 01.01.1902, Síða 4

Fríkirkjan - 01.01.1902, Síða 4
4 að beina augum þess til himins, þar sem Jesús situr i dýrð sinni og almætti, konungur allra inanns-sálnanna. Sú hugsun, að börnin séu endurleyst, á að vera huggun vor, þe'gar vér litum á börnin, og það sé slyrkur vor í uppeldi þeirra. Yér eigum ekki að treysta sakieysi barna vorra. Það sak- ieysi á heima í ímyndun vorri og hvergi annarstaðar. Ógnar kraptur syndarinnar blundar i brjósti þeirra; voðaöfl syndarinn- ar leika um þau, og ótal illir andar reyna að tæia þau og toga niður, — niður til helvítis. En oss er óhætt að fulltreysta því, að Kristur er sterkari en syndin, djöfullinn, helviti og heimurinn, þótt það leggist allt á eitt, og þótt það æði og vinni voðalegt tjón. Oll aðhlynning og glœðing andlega lifsins verður að slyðjast við ~þá grundvallarskoðun, að endurlausnin sé fram farin. Höf- uðatriðið i öllum söng, bænum og íhugun guðs orðs verður að vera þetta: endurlausnin í Jesú Kristi er fram farin. Vér eigum þvi ekki fyrst og fremst aÖ tala við börnin um synd og helvíti, dóm og reiði guðs, heldur eigum vér að sýna þeim dýrð kristindómsins og hinar björtu hugsjónir hans, tala við þau um hinn almáttuga og óendanlega kærleika guðs, reyna ekki svo mjög til að sýna þeim hinn stranga óvíkjanlega lög- gjafa, heldur hjálpa þeim til að sjá hina dýrðlegu föður-ásjónu guðs. Vér megura ekki hafa trúarbrögðin að svipu á þau, og þess vegna er það fjarri öllu lagi, að reka þau til að læra sálma eða ritningargreinar, þegar þeim yfirsézt, eins og í refsingar skyni. Vér eigum ætíð og ávallt að sýna þeim, að sönn guð- hræðsla og sönn gleði eru skiigetnar systur. Það fer opt hrollur um oss, þegar vér virðum fyrir oss heiminn, sem bíður barnanna, þar sem þau bráðlega (já svo brátt!) verða að hjálpa sér sjálf. Vér hugsum opt með hryggð og kviða: Hvað ætli verði um ykkur, blessuð börnin )nin, þegar þið farið að ráða ykkur sjálf og eruð orðin foreldralaus? Mér kemur hér í hug átakanleg saga: Málari nokkur ætlaði að mála sakleysið, og málaði hann þá einstaklega laglegan dreng, sem kraup við hné móður sinn- ar; móður-ástin skein úr augum hennar, þar sem hún horfði á drenginn sinn, en hann spennti greipar, horfði til himinsogþað var nær þvi sern bænarorðin sæjust, á vörum hans; heilbrigði mátti

x

Fríkirkjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.