Kirkjublað - 01.11.1933, Blaðsíða 6

Kirkjublað - 01.11.1933, Blaðsíða 6
2 KIRKJUBLAÐ á þennan hátt boðskap hennar til heimilanna, þann boðskap, sem við vitum einan þess megnugan að efla og vernda trú og siðgæði þjóðarinnar og gefa henni þrótt til að sigrast á erfiðleikunum, sem hún á við að stríða. Ef til vill lcann einhverjum að finnast blaðið í heldur fátæklegum búningi, en ekki teljum við að því; svo eru einnig flestar íslenzku kirkjUrnar. Hitt er okkur aðalatriði, að það, er blaðið hefir að flytja, eigi sem mest og bezt erindi til allra, og að eng- um verði ókleyft að eignast það, ef hann á annað borð lang- ar til þess. Viljum við óska þessu blaði liins sama og Þór- hallur Bjarnason „Kirkjublaðinu“ fyrir rúmum UO árum, að það verði blað fyrir íslenzka alþýðu og góður heimilis- vinur á hverju heimili. En til þess að blaðið nái tilgangi sínum, þurfa góðir menn um land allt, prestar og leikmenn, að leggja því sem bezt lið bæði í orði og verki, og biðjum við Guð að gefa, að svo verði. Með bæn til hans hefur þetta Kirkjublað göngu sína. Árni Sigurðsson. Ásmundur Guðmundsson. Friðrik Hallgrhnsson. Minning Lútliers í tilefni af hálfrar fimmtu aldar afmæli hans. í þessum mánuði (10. nóv.) eru liðin 450 ár, siðan Marteinn Lúther fæddist í þennan heim. Þykir því við eiga, að þessa sé minnzt lítilsháttar í þessu nýja Kirkjublaði, er hér hefur göngu sína. Má hiklaust gera ráð fyrir, að hið sama verði gert víðsvegar um kristinn heim mótmæl- enda trúar, enda þótt ekki verði efnt til sérstakra minn- ingar-hátíðahalda, svo lítt fallnir til þess sem nálægir tímar eru, með allri þeirri ólgu, sem nú ríkir í þjóðadjúpinu, og með öllum þeim erfiðleikum, sem menn eiga nú við að stríða um allan hinn siðmenntaða heim. En allt að einu

x

Kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.