Kirkjublað - 01.11.1933, Side 8

Kirkjublað - 01.11.1933, Side 8
4 KIRKJUBLAÐ Lúthers), og innan kirkjudeildar þeirrar, sem kennir sig við hann, hafa ýmsir komið fram síðar, sem vafalítið hafa verið honum fremri í þessu tilliti. Þá verður því ekki heldur neitað, að afkastasemi hans til ritstarfa var risa- vaxin. Má geta þess, að Erlangerútgáfa rita hans er i 105 bindum (67 á þýzku, en 38 á latínu) og að auki eru til bréf Lúthers í meira en 20 bindum. Þar við bætist svo biblíu- þýðing hans. En allt að einu verður Lúther ekki talinn »vísindamaður« í þessa orðs venjulegu merkingu. Eigin lífsreynsla hans og innri barátta verður til þess að móta lífsskoðun hans, en ekki vísindalegar rannsóknir hans og yfirlegudhuganir. Hin mikla meginspurning fyrir Lúther var sú, hversu hann fengi öðlazt frið sálu sinni. Sann- leiksleit hans var öll fyrst og fremst miðuð við þetta, en ekki við guðfræðilega rembihnúta, er verða á vegi vís- indamannsins við hvert fótmál hans. Um Lúther verður því naumast sagt, að hann hafi með lœrdómi sínum rutt nýjar brautir. Hann er í þvi tilliti í mesta máta háður samtíð sinni og öllum hugsunarhætti hennar. Hann hefir meira að segja verið fastheldnari við ríkjandi skoðanir samtíðar sinnar en menn almennt grunar. Guðfræði Lút- hers er í öllum meginatriðum arfur frá katólskri lífsskoðun hans, sem hann hafði alizt upp við, enda var það sízt til- gangur hans í upphafi að snúa baki við trú feðra sinna, sem hann hafði drukkið inn í sig með móðurmjólkinni, eða á nokkurn hátt að leggja fyrir cðal kenningarkerfi kirkjunnar. En af því að Lúther hirti ekkert um að temja sér gagnrýni vísindamannsins í ritstörfum sínum, en skap- aði sér sínar eigin meginreglur út frá Iífsreynslu sinni og lífsbaráttu, sem hann miðaði allt við, þá gat ekki hjá því farið, að ýmislegt af því, sem hann hélt fram, fengi ekki staðizt, er til lengdar lét, og að í guðfræði hans kenni mótsagna af ýmsu tæi, svo að einatt sé erfitt að greiða til fulls úr þvi, sem hann heldur fram, oft knúinn af sér- stökum kringumstæðum í þann og þann svipinn. Það, sem ávalt skiftir hann mestu, er hið raunhæfa líf og þarfir þess, en ekki visindalegl réttmæti þess, sem hann heldur fram.

x

Kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.