Kirkjublað - 01.11.1933, Qupperneq 13
KIRKJUBLAÐ
9
Jafnframt, að þessi kraftur hefir birzt á mismunandi hátt á
hinum ýmsu tímum. Stundum hefir borið mikið á homnn,
stundum minna. Tímarnir hafa verið ærið ólíkir og mis-
munandi skoðaðir frá þessu sjónarmiði. Er einasta skýr-
ingin á þeirri staðreynd sú, að þessi munur stafi frá því,
að menn á hinum ýmsu tímum hafi á mismunandi hátt
fullnægt þeim skilyrðum, sem krafturinn frá hæðum er háð-
ur. Þvi að sjálfsögðu er hann, eins og hver annar kraftur,
bundinn skilyrðum um rétta hagnýtingu og viðtöku þeirra,
er njóta eiga.
Margir munu með hryggð hugsa um vora tima, ef
mælikvarðinn um kraftinn frá hæðum væri á þá lagður.
Þeir myndu benda á illu öflin, sem svo mikið ber á í
sambúð þjóða og einstaklinga. Um þau gætu þeir lengi
talað og margt um þau sagt, enda hafa menn mest verið
um þau fræddir. Ekki skal ég heldur draga úr skaðvæni
þeirra. Hugur minn fyllist sorg, er ég hugsa til þess, hve
mikið ber á syndinni og spillingunni á vorum tímum.
En ég sé þó ekki tómt myrkur, þegar ég hugsa til
nútímans. Ég sé einnig Ijósdepla, sem leiftra í myrkrinu
og hljóta að vekja gleði og þakklæti til Quðs fyrir það,
að enn birtist kraftur hans í mannlegu lífi, víðsvegar um
lönd, víðsvegar um álfur, hjá öllum stéttum, í hreysi og
höllum. Ég gæti bent á allmargar bækur frá síðustu árum,
er lýsa fórnfúsu þjónustustarfi kristinna manna víðsvegar
um heim, er lýsa mönnum, er gjörbreytzt hafa fyrir áhrif
kristindómsins og síðan varið lífi sínu til þess að hjálpa
öðrum til sömu breytingar. Hér er þó ekki tækifæri til að
benda á rnargt um þau efni, en verður að láta nægja að
benda á eina trúarhreyfingu, sem nú vekur mesta eftirtekt
um allan kristinn heim. Það er Oxford-hreyfingin nýja.
Hún er ekki gömul, þó komin á annan áratuginn. Hún er
kennd við háskólann í Oxford í Englandi og þar er mið-
.stöð hennar.
Það, sem hreyfing þessi leggur aðaláherzlu á, er, að
kraftur Guðs birtist í lifi manna. Leiðtogar hreyfingarinnar
.meta ekki mikils þá trú, sem engu breytir i lífi manna, en