Kirkjublað - 01.11.1933, Page 16
12
KIRKJUBLAÐ
karla og kvenna. Það er örðugleikum bundið að komast i persónu-
lega kynningu við fólk, en starf vort hefir vakið svo mikinn áhuga,
að þúsundir manna leita nú til vor og óska viðtais við meðlimi
hreyfingarinnar.« — Kirkjublað mun bráðlega fræða lesendur sína
nánar um uppruna og eðli þessarar stórmerku hreyfingar, sem hefir
sett sér það inark og mið aö sannfœra heiminn um mátt Krisis
til þess að leysa öll vandamál nútímans.
Hallgrimsnefndir
er nú verið að skipa víðsvegar um land. Er hlutverk þeirra að
hlúa að kirkjulegu starfi með prestum landsins. Verður þessum
nefndum falið að styðja að fjársöfnun til Hallgrímskirkju meðal
annars með þvi að útbreiða bókina »Hallgrímshátið 1933«, sem get-
ið er um hér i blaðinu.
Þætti Kirkjublaði mikils virði að mega njóta samvinnu við
þessar nefndir, þegar þær taka til starfa.
Bækur.
»Hallgrímshátíð 1933«
heitir bók, sem kemur fyrir almennings sjónir þessa dagana.
Hefir nefndin, sem sá um hátíðahöldin í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
30. júli i sumar, séð um útgáfu bókarinnar.
Hefst bókin á inngangi, sem skýrir frá Hallgrímskirkju-hug-
myndinni, og lýsir því, í hvert horf þvi máli er nú komið, enn-
fremur frá undirbúningi hátíðarinnar. Síðan eru birtar ræður þær,
sem fluttar voru á hátíðinni. Eru þær eftir sr. Þorstein Briem, sr. Sig-
urjón Guðjónsson, dr. Guðmund Finnbogason og dr. Magnús Jóns-
son. 1 bókinni eru margar myndir. Er þar mynd af Hallgrími Pét-
urssyni, sem tekin hefir verið með öðrum hætti eftir frummyndinni
en Hallgrímsmynd sú, sem almenningi er kunnust. Auk þess eru
myndir frá Saurbæ og hátiðahöldunum. — Hátíðahöldin 30. júlí fóru
fram með mikilli prýði, og mun þvi margan fýsa að eignast bókina.
Andvirði bókarinnar rennur til byggingar Hallgrímskirkju i Saurbæ.
KIRKJUBLAÐ
Málgagn fslenzku kirkjunnar, gefiö fit af Prestafölagi íslands.
Útgáfustjórn:
Séra Friörik Hallgrímsson, dómkirkjuprestur.
— Ásmundur Guðmundsson, háskólakennari.
— Arni Sigurðsson, »«fríkirk juprestur.
Kitstjóri og afgreiðslumaður:
Séra Knútur Arngrímsson, Vesturg. 17, Rvik. Sími 3070.
Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f.
Áskriftaverð til áramóta 1 króna.
Áskriftaverð fyrir árganginn framvegis kr. 3.00, er greiðist í
tvennu lagi, kr. 3.50 3. júní og kr. 1.50 1. okt.
Eftir áramót verða útkomudagar 1. og 15. hvers mánaðar.