Kennarinn - 01.06.1903, Side 5

Kennarinn - 01.06.1903, Side 5
KENNARINN 45 höföu bólgu eins og aörir Egyptalandsmenn, 12. En drott- inn forherti hjarta faraós, svo hann hlýddi þeirn ekki, eins og drottinn haföi sagt Móses. 13. Þá mælti drottinn viö Móses: Rís upp árla á morgun, gakk fyrir faraó og seg til hans: Svo segir drottinn, guö hebreskra manna: Gef fararleyfi fólki mínu, aö þaö megi þjóna mér; 14. ellegar mun eg í þcssu sinni scnda allar minar plágur yfir þig sjálfan, yfir pjóna þína og yfir fólk þitt, svo aff þú vitir, aff enginn cr viinn líki á öllu jarffríki. 6. plágan.—Þótt syndin sé uppreisn á móti guðs heilaga lögmáli, tilraun viljans að gera að engu lögmál guðs, er hún þó sjálf háð sínu eigin lögmáli — þroskalögmáli. Eins og steinninn fellur með vaxandi hraða, eins fer maður- inn, sem þverskallast gegn guði, með sívaxandi hraða fjær og fjær guði. A þessari leið var faraó. Vildi ekki láta undan. Harðnar því æ meir. En hönd drottins grípur í manninn og vill stöðva hann á ferð hans niður á við sam- kvæmt þungalögmáli syndarinnar. Þá gefst manninum tækifæri að nema staðar og snúa við, og hönd drottins, sem tekur í liann, en snýr honum ekki við á möti vilja hans, gerir honum það mögulegt að nema staðar og snúa við. Þannig gafst faraó tækifæri. Þegar í 6. plágunni hönd drottins legst þung á faraó sjálfan og allan lyð hans og hlífir engum, þá lætur dr. hann finna til mátt- ar síns og þrýstir honum til hlýðni við sig. En ,í stað þess að láta höndina máttugu þrýsta ser til auðmýktar, þrýstir hún honum fjær, af því hann vill ekki láta undan.—Þegar M. og A. að honum ásjáandi dreifa úr höndunum upplyftum til himins öskunni, á hann að fá að sjá, að það er hönd Israels guðs, sern upplyft er á móti honum og sendir pláguna. Askan úr ofninum og plágan átti að minna hann á ,,hörmunga-ofninn“ (Esaj. 48, 10), sem hann öll þessi ár hefði verið að , ,steikja“ I^raelsmenn í. Líka á hégómleik guösdýrkunar- innar egypzku; því til þess að bægja frá sér óheillum fórnuðu Egyptar mönnum (útlendingum, líklega meðal þeirra Israelsmönnum) guði sínum Set (eða Týfón) og dreifðu öskunni af þeim í loft upp. Syndir faraós eru honum sýndar og gjöld þeirra koma niður á honum. En hann bætir synd ofan á synd. — Allir, sem ekki vilja iðrast, bæta synd ofan á synd Ert þú að gera það? AÐ LESA DAGLEGA.—Mán.: Pp. 15, 1— 21. Þrið.: Pr. 16, 1—15. Miðv. :.Pg. 17, 22— —34. Fiint.: Pg. 18, 1—11. Föst.: Pg. 19, 1—20. Laug.: Pg. 20, 1—6. KÆRU BÖRN! Það er eitt, sem þið eigið að vera hrædd við að láta vaxa hjá ykkur. Og það er syndin. Hún fær að vaxa hjá mörgum börnum, svo þau verða verri og verri. Þegar ykkur þykir ekki fyrir, þegar þið hafið gert eitthvað ljótt, og biðjið ekki um fyrirgefning, j)á vex syndin hjá ykkur. Látið faraó minna ykkur á, hvað hættulegt er að láta syndina vaxa. Biðjið guð að hjálpa ykkur til að iðrast og biðja um fyrirgefning, svo syndin vaxi ekki. Þá vex hið góða hjá ykkur. ,,Við freistingum gæt þín" o s.frv,—Sb. 358, 1.

x

Kennarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarinn
https://timarit.is/publication/487

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.