Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Page 4

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.07.1927, Page 4
■2 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. Ef nú einhver spyr þann mann, sem kveðst aðhyllast trúarsetning'alausan kristindóm, spyr hann um eitthvað viðvíkjandi þessum lcristindómi, þá verður sá, sem spurður er, að svara, ef hann á annað borð vill vera sjálfum sier samkvæmur, að hann hafi ekkert svar \ið slíkum spurningum. Ef hann er spurður, hvort Guð sje til, hvort til sje eilíft líf, hvort fyrirgefning synda fáist, hvort vjer eigum föður á himnum, þá getur sá, sem spurður er, ekki svarað, því að hann vill ekki binda sjálf- an sig nje aðra við ákveðnar setningar. Þess vegna er ekki vert að spyrja þann mann, því að menn geta ekki fengið neitt svar. Ef hinn trúarsetningalausi, sem þó vill hafa kristindóm, færi að gefa ákveðin svör, þá er hann í mótsögn við sína eigin staðhæf- ing, því að þetta var eitt meginatriði á sfefnuskrá hans, að hafa enga ákveðna játn- ingu. Hvernig er hægt að hugsa sjer krístindóm án trúarsetninga ? (þýtt úr grein efti'r Johannes Loft yfirkennara). Knud Zimsen borgarstjóri. Á þessu vori voru liðin 25 ár frá því að Knud Zimsen tók sæti í stjóm K.F'.U.M. Jeg var þá, (vorið 1902) að lesa undir stúdents- próf, og mjer er svo margt minnisstætt frá því vori. Það vakti undrun hjá mjer og mörg- um öðrum, að ungur verkfræðingur skyldi halda kristilegar samkomur og vera með lífi og sál í kristnu starfi. Nú sje jeg það svo vel, að það eru meðmæli með hverjum manni og starfi hans, að hann er kristinn. Þá mundi birta yfir þjóð vorri, ef menn í trúnaðarstöð- um játuðu opinberlega kristna trú. Jeg hefi orðið fyrír blessunarríkum áhrifum hjá ýms- um prestum, en jeg vil aldrei gleyma áhrif- unum, sem jeg hefi orðið aðnjótandi hjá ýms- um trúuðum leikmönnum. Jeg man, hve mikla blessun jeg hlaut á stúdentsárum mín- um, er jeg hlustaði á vekjandi ræður hjá Harald Westergaard prófessor, Moltke greifa, sem í hverjum mánuði hafði samkomur heima hjá sjer fyrir stúdenta og skólapilta, eða hjá Bangert skrifstofustjóra, sem vav formaður K. F. U. M. í Khöfn. Fyrv. forsæt- isráðherra Dana, J. C. Christensen, starfar opinberlega að kristindómsmálum og ritar margar vekjandi greinar um trúmál, og þannig starfa margir menn í ýmsum löndum. Það var K. F. U. M. hjer í bæ til mikillav blessunar, að K. Zimsen gjörðist meðlimur f jelagsins. Þar hefir K. F. U. M. átt góðan vin og stuðningsmann, ekki aðeins meðlim á skrá, heldur bróður í verki. Þegar jeg hugsa um starf hans í fjelaginu, virðist mjer það stjórnast af þessum orðum: Elskum ekki með orði og ekki með tungu, heldur í verki og sannleika. Það er ekki nóg að lýsa kær- leikanum með fögrum orðum, en það verðui’ gieði, þegar verkin sýna, að orðin eru sönn. Opt hafa meðlimir K. F. U. M. hlustað á K. Z., hlustað á orð þau, sem hann hefur tal-

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.