Verði ljós - 01.04.1896, Síða 4
52
krossfesting' með Kristi, som frelsaði binn iðrandi ræningja. Og
af því að hann var þannig í sannleika krossfestur með Kristi og
hafði fyrir það hlotið hinn rjetta skilning á gátu krossins, tók hann
möglunarlaust þoim þjáningum, sem hann fann, að hann áttiskilið
fyrir hegðun sína í lífinu og gat beðið í djúpri auðmýkt og lifandi
trú: „Minstu mín, herra! þegar þú kemur í ríki þitt“.
En jeg og þú, kristinn maður, hví stöndum vjer enn svo til-
finningarlausir á Höfuðskeljastað, þar sem kross frelsarans blasir
við okkur? Skyldi orsök þess vcra nokkur önnur cn sú, að við
skiljum enn ekki gátu krossins? Og hvaðan stafar það skilnings-
leysi okkar? Oegar jeg lít til hins deyjandi ræningja á krossinum,
hlýt jeg svarið, og það er þetta: Látir þú þjer nægja, að vita
það, að Kristur er krossfestur fyrir þig, en vilt ekki sjálfur
láta krossfestast með honum, muntu að eilífu ekki hljóta hina
rjettu ráðningu á gátu krossius! J. H.
Krjúp l>ú Yið krossimi!
Eptir Stein kennara Sigurðsson.
Æ, krjúp þú í auðmýkt ó kristins manns sál!
við krossinn, þars frelsarinn deyði;
lát hejmsins ei blekltja þig hættulcgt tál,
en hlustað’ á frelsarans líknarmál:
Jeg götu til himins þjer greiði.
Æ, krjúp þá á Golgata krossins við fót,
þars Ivristur hlaut saklaus að pínast;
hann faðminn sinn blóðugan breiðir þjer mót
og blessaður segir: Míns frelsis njót!
líann vill ei að vjer skulum týnast.
Æ, krjúp þú í gleði og krjúp þú í lirygð
við krossinn Iians gæða jeg ann þjcr,
en gleymdu nú syndum og gakk fram í dygð,
svo glatirðu ei sa^Junnar himinbygð,
sem Kristur á krossinum vann þjer.
Æ, krjúp þú í dauðanum krossinum hjá,
við krossinn þjer hvílurúm búðu;