Verði ljós - 01.04.1896, Blaðsíða 6

Verði ljós - 01.04.1896, Blaðsíða 6
54 sjer, þannig þyngist og persóna mannsins Jesú frá Nazaret, því lcngur scm vjer virðum hana fyrir oss; já því lengur scm vjer með hinu rjetta hugarfari (o: því hugarfari, sem ekki leitar annars en sannloikans) virðum hann fyrir oss, því sannfærðari verðum vjer um það, að hjer er mcira en vanalegur maður, unz vjcr um síðir verðum að taka oss í munn orðin, sem hundraðshöfðiuginn forð- um mælti á Golgata: „Sannarlega er þessi maður guðs sonur!“ (Matt. 27, 54). Vjer verðum að byrja á því, að virða fyrir oss manninn Jes- úm, til þess rjettilega að geta sannfærzt um guðdóm hans. Þetta vil jeg iíka gjöra, Bergþór minn góður! í þessum pistli mínum, og það er mjer því yndislegra, sem jeg hygg, að hjér geti leiðir okk- ar legið saman um stund, þótt þær hljóti að skilja síðar. Og jeg vil þá segja það strax, þótt ef til vill væri rjéttara að enda á því, að aldrei hefir nokkur maður lifað hjor á jörðu, er með eins mikl- um sanni og hann, hefði getað tekið sjcr í munn hið gamalþekta orð: „Jeg er maður og álít ekkert mannlegt mjer óviðkomandi“. Þar sem Jesús frá Nazaret er, þykist jeg sjá manninn í orðsins fylstu og fegurstu merkingu. Ekkert mannlegt er honum óviðkom- andi, og það er svo fjarri því, að hann álíti sig haíinn yfir að taka þátt í kjörum mannanna, að miklu fremur má segja, að enginn maður hafi nokkru sinni tekið eins innilegan þátt í kjörum þeirra éins og hann, lifað ineð þeim og fyrir þá cins og hann, elskað og hatað, hrygzt og glaðzt, beðið og unnið, starfað og strítt, liðið og dáið eins og hann. Ekkert er fjær honum en tilfinningarleysið, sem ekki kemst við af neinu. Hann rciðist eins og aðrir menn, eða er það ekki reiði, scm Jitar ásýnd hans þegar hann hreins- ar musterið eða þegar hann ávítar Faríseana og hina skriptlærðu fyrir hræsni þeirra og harðýðgi? Hann gleðst oins og aðrir menn, eða er það ekld gleði, sem skín úr augum hans, þegar læri- sveinarnir koma til hans cptir hina fyrstu útsending þeirra og til- kynna honum, hvað sjer hafi ágengt orðið? Hann hryggist eins og aðrir menn, — eða er það ekki hrygð, sein kremur hjarta hans, þegar hann grætur við gröf vinar síns, Lazarusar í Botaníu eða þegar hann á Olíufjallinu tárast yíir borginni, sem ekld þekti sinn vitjunartíma? Iíann fyllist angist og kvíða eins og aðrir menn eða er það ekki angist og kvíði, sem gagntckur sálu hans, er hann hnigur til jarðar i grasgarðinum, sveitast blóði og biður: „Ef það cr mögulegt - - ?“ — Sannarlega hrærist geð hans cins og annara manna, en munurinn er aðeins sá, að hjá honum verður

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.