Verði ljós - 01.04.1896, Page 8

Verði ljós - 01.04.1896, Page 8
56 stendur sjálfur eins og kletturinn úr haíinu, sterkur og ósveigður af öldum lífsins. Ilann er í engu meðalmaður. Jeg sje hvergi annað cn fullkomleika á hæsta stigi. Alt það, sem jeg voit göfug- ast, tignarlegast, háleitast, lofsverðast og eptirsóknarverðast í fari mannanna, alt — já alt þetta finn jeg hjer sameinað i einni per- sónu, í persónu Jesú frá Nazaret. Það er að eins eitt, sem jeg finn í fari hvers einasta manns, en finn ekki í fari Jesú frá Nazaret, þetta eina það er — synd- in! Hve vandlega sem jeg leita, verð jeg ekki nokkurs þessvar, er á nokkurn hátt verði talið til syndar. 0g þó er það sízt af því, að freistingar verði ekki á vegi hans, því að svo að segja hver blaðsíða guðspjallanna sannar mjer sannleika þessara orða í brjefinu til hinna Hebrezku: „Hann var freistaður á allan hátt eins og vjer —“; en guði sje lof! hver blaðsíða þeirra sannfærir mig líka um sannleik orða þeirra, sem á eptir koma: en þó án syndar!“ (Hebr. 4, 15). Hvert fótmál, sem hann stígur, hver at- höfn, sem hann framkvæmir, hvert orð, sem hann talar, er í fullu samræmi við það, sem hann sjálfur taldi meginreglu iífs síns: „Minn matur og drykkur er að gjöra vilja þess, scm mig séndi og fram- kvæma verk hans“. Þannig leiðist jeg þá, er jeg virði fyrir mjér æfiferil Jesú frá Nazaret, eins og guðspjöllin lýsa honum, að þeirri staðhæfingú, sem kristin kirkja hefir iialdið fram frá upphafi vega sinna, og jafnvcl margir þeirra kannast við, sem annars höfnuðu guðdómi Jcsú Krists, — að Jcsús hafi syndlaus lifað. En þegar jeg tala um syndleysi Jesú þá er það auðvitað ekki aðcins að skilja svo, að hann hafi lifað án þess nokkru sinni að drýgja nokkra stórsynd, heldur er moiningin sú, að Jesús hafi aldrei hvorki í hugsunum, orðum nje verkum gjört nokkuð það, er ekki fær staðizt fyrir augliti hins hcilaga guðs.------- Jeg verð að láta hjer staðar numið í kvöld, sonurinn minn góður! því nú cr jcg orðinn þreyttur. En vonandi gefur drottinn mjér með nýjum degi nýja krapta. Þinn clskandi fóstri Hjörtur.

x

Verði ljós

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.