Verði ljós - 01.11.1897, Blaðsíða 9

Verði ljós - 01.11.1897, Blaðsíða 9
169 farið, að kraptur guðs orða styrki oss til að feta í fótspor Jesú á vegi auðmýktar, sjálfsafneitunar og bróðurkærleika. Eh þar sem alt þetta þrent starfar saman, þar er og drottinn Jesús Kristur sjálfur nálægur með sínu ljósi, yl og krapti, en þar sem Jesús þannig er nálægur, þar getur veturinn með hörkum sinum og frostum, hríðum og stormúm als eldd náð inn í hjartað, svo að þar getur haldið áfram að vera sumar með sælu og gróður, þótt kuldinn nísti fyrir utan oss. Svo veri þá það orð vors guðs, sem að eilífu stendur stöðugt, vort ljós, ylur og kraptur á komandi vetrartíð. Vjer þurfum sizt að kvíða ef Jesús Kristur er með oss, hann sem er hið eilífa guðs orð i persónu- legri mynd. En þar sem liann er með sínu orði og sínum auda, með sínu ljósi og sínum krapti, þar hljóta fram að vaxa af lijartnanna jarð- vegi hin óvisnanlegu blóm trúar, vonar og kærleika, því þar er sífelt sumar — sumar í hjarta mannsins jafnvel mitt í vetrarliörkunum. ____________________J. H. Hrópandi tölur. Útgefendum blaðs þessa hefir ekki svo sjaldan verið slett því i nasir í seinui tið af ýmsum góðum mönuum, að flest af þvi, sem i „Verði ljós!“ lieiir verið sagt um kirkjulega ástaudið í landinu, bæri áþreifaulega vott um mikla vanþekkiugu á ástandiuu eins og það væri í raun og veru, og ekki var það sízt látið klinga af ein- stöku mönnum á síðustu prestastefnunni. Nú er það ekki nema sjálf- sagt, að útgefendum „Verði ljós’s“ geti skjátlazt eins og öðruhi dauð- legum mönnum og þeir geta ekki annað en verið þakklátir hverjum þeim, er góðfúslega telrar sjer fyrir lieudur að leiða þá út úr villunni og vanþekkingunni með því að sýna fram á það með rökum, að þeir hafi á röngu að standa. En meinið er, að þeir, sem helzt hafa borið oss á brýn vauþekkingu á kirkjulega ástandinu í landinu, hafa varast það eius og lieitan eldinn að leiða rök að orðum sínúin. Gagnvart þeim fiuuum vjer því enga skyldu á oss hvíla, til að bera af oss vanþekk- ingar-vitnisburðinn. Oss stendur svo hjartanlega á sáma, hvað þessir menn álíta um oss eða um þekkiugu vora á þeim efuum, sem um er að ræða. En öðru máli er að gegna um lesendur „Verði ljós’s“. Gagn- vart þ.eim höfum vjer þá skyldu á oss hvílandi, áð láta þá sjá'það svart á hvitu, að skoðanir þær, sem blaðið heldur fram viðvikjándi kirkjulega ástandinu, sjeu ekki gripnar úr lausu lopti, heldur hafi hin ríkustu rök við að styðjast. Heir geta átt heimtiugu á því, að vjer ó- gildum vanþekkingar-vituisburðinn, sem oss hefur verið geíinu i seinni tið, bæði á mannfundum og prenti. Vjer höfum haldið því fram lijer i blaðinu, að tfúai-lífið á íslandi væri í hiuni mestu niðurlægingu og hnignaði ár frá ári; þetta segja

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.