Verði ljós - 01.12.1898, Síða 5

Verði ljós - 01.12.1898, Síða 5
181 vikum seinna stóð brúðkaup þeirra. Lavater var enn þá embættislaus, og tekjurnar, sem hanu hafði, sérstaklega af kenslu, voru ekki svo miklar, að þau gætu haldið liús sjálf; þess vegna urðu þau í 8 ár að búa hjá foreldrum hans og hafa alt sameiginlegt við þau. Þetta var í fyrstu mjög svo óþægileg staða fyrir Önnu, því að tengdamóðir hennar, svo gáfuð og andrík sem liún var, þótti nokkuð smámuuasöm og stór í geði ef út af bar. Auk þess var Lavater sjálfur stirðlyudur maður og ekki ávalt gott að gjöra svo houum líkaði. Eu með stillingu sinni og hugprýði tókst Önuu smámsaman að vinua bug á þessum erfiðleikum. Húu lærði smámsaman hina erfiðustu allra lista, að slaka til og láta undan, þegar vilji hennar koin i bága við annara vilja, og að þegja, heldur en að svara, þegar henni var gjört rangt til, treystandi því, að guð mundi uin síðir leiða í ljós hið sauna og rétta í hverjum hlut. Gæti hún ekki með öðru móti haft áhrif á maun sinn, bað hún guð innilega fyrir honum, að honum mætti takast að nema þá íþrótt, að temja skaps- muni sína. í dagbók sinni segir Lavater iðulega frá smáatvikum, er sýna það bezt, hvílík kona húu reyndist honum. „Einu sinni — skrifar Lavater — var vinnustúlkan að taka til í herberginu minu; ég var þá sem oftar í vondu skapi. Eg hafði lagt rikt á við hana, að snerta ekki eða rugla bókum og blöðum á skrif- borði míuu; ég beið óþolinmóður eftir að hún lyki starfi sínu og kall- aði loks upp, hvort hún væri búin, en þaut strax, án þess að bíða svars, upp í lierbergi mitt. Stúlkunni varð svo hverft við, að hún rak sóflskaftið í blekbyttu í bókaskápnum og velti henni niður á borðið. Eg varð fokreiður og mælti: „£>ú ert ljóti bjálfiun, — sagði óg þérþað ekki skilmerkilega, að þú ættir að fara varlega'*. I saina bili kom konan min iun, en ég lét dæluna gauga, rótt eins og einliver stórkost- legur skaði væri skeður, en hugsaði ekkert um að gá að því áður. Allur skaðinn reyndist eftir alt saman ekki meiri en það, að nokkrir blekblettir höfðu komið á gamlan þerripappir á borðinu. Stúlkan fiýtti sér út, eu konan mín lagði handlegginn um hálsinn á mér og sagði: „Jóhann! 3?ú eyðileggur heilsuna þíua með þessu, elskan min“. Eg reyudi að komast undau, en gat ekki; með innilegum kærleika liallaði hún höfði sínu upp að mér. Nú blygðaðist ég mín yfir sjálfum mér, þagnaði og sagði loks með grátstöfum : „Það er mikil skömm að þvi, hvílíkur þræll geðsmuna minna ég er. Þessi synd nær sífelt meiri tök- um á mér!“ „Nei, góði miun, það liða oft dagar og vikur, sem þú ekki lætur reiði þíua yfirbuga þig!“ svaraði hún í stað þess að finna að við mig; „eu nú skulum við sameiginlega biðjast fyrir“. Og svo leiddi hún mig inn i herbergi sitt og baðst fyrir heitt og innilega, en jafnframt svo barnslega og látlaust, að hjarta mitt styrktist margfald-

x

Verði ljós

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.