Verði ljós - 01.05.1900, Blaðsíða 2

Verði ljós - 01.05.1900, Blaðsíða 2
66 llristnitaka forfeðra vorra og dhrif kristindómsins d líf þeirra. Ágrip aí’ fyrii'lestri, fluttum í „Banclalagiuu11, eftir séra Eirík Briem, prestaskólakennara. P«VÍ liefir oft verið lialdið fram, að lögtekning kristniunar hór á J4 landi beri vott um, að trúin hafi ekki verið forfeðrum vorum mikið alvörumál. Eu það hefir áður verið talað um það í fólagi voru, að þetta er ekki rétt álitið, því að mikill undirbúningur liafði átt sér stað undir lögtekninguna ; og þess var þá miust, að margar hinar helztu ættir landsins höfðu átt kristna forfeður, að fjöldi manna hafði átt kost á að kynnast kristinni trú á forðum sínum til útlanda, og enu fremur að kristniboðið hafði þá verið flutt í full 10 ár um land alt með miklu kappi. Hve mikinn árangur kristniboðið var búið að fá árið áður en kristni var iögtekin, má meðal annars sjá á þvi, að þegar Hjalti Skeggjason liafði freklega lastmælt goðunum á sjálfu Lögbergi, þá varð að beita vopnum til að fá hanu dæmdan sekan að lögum. — Sjálf frásögnin um þá atburði, er urðu á JÞiugvöllum 22.—24. júní árið 1000, ber og áreiðaulegan vott um þá alvöru og það kapp, er meun lögðu á inálið. Laugardaginti 22. júní söfnuðust kristnir menu saman fyrir austan Þingvöll og riðu svo á þiugið með miklum flokki; var þá Hjalti Skeggjason, sekur maður, þar meðal þeirra; um það þarf ekki - að tala, hvort kristnir menn hafi rétt gert með því að brjóta þannig landslögin, en þeir sýndu með þvl, að þeir liikuðu ekki við að leggja lif sitt við að fá máli sínu framgengt, enda lá við sjálft, að heiðnir inenn legðu til orustu við þá, er þeir komu á þingið. Daginn eftir, sunnudaginu 23. júní, héldu kristuir menn guðsþjónustu og fluttu svo mál sitt á Lögbergi, og út úr því sögðust svo kristnir menn og heiðnir livorir úr lögum við aðra, það er að segja: uú er liafln fullkomin stjórn- arbylting; var hvorumtveggju, heiðnum mönnum og kristnum, ljóst, livað ráðist var í með því; tóku heiðnir menn þá það ráð, sem aunars voru ekki dæmi til hér á landi, sem sé að lórna mönnum, en í aunan stað áttu kristnir meun fund með sér; töluðn þeir Gissur hvíti ogHjalti um, að þeir skyldu einnig hafa mannblót, og sögðu svo : „Heiðingjar blóta hinum verstu mönnum, en vér skulum velja að mannkostum og kalla sigurgjöf við drottin vorn Jesúm Krist; skulum vér lifa því betur og syndvarlegar en áður“. Eftir samkomulagi við Hall á Síðu, er kristnir menn höfðu kosið sér fyrir lögsögumann, kom svo Horgeir lög- sögumaður daginn eftir fram með ákvæði þau, er bæði kristnir meun og heiðnir sættust á.* Hauuig var þá mánudaginn 24. júní árið 1000 * Þar sem svo er sagt, að hvorirtveggju, kristnir monn og heiðnir, játuðu

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.