Verði ljós - 01.05.1904, Side 2

Verði ljós - 01.05.1904, Side 2
66 VERÐI LJÓS! haldinn á prestafundi á Akureyri 9. júlí 1903. Eftir séra Davið Guðmundsson á Hofi i Hörgárdal. ér er sárt um trú mína, ég segi það einsog ])að er, trú nnna á guð föður, son og heilagan anda, samlífi mitt við guð, sem ég lifi á dag hvern einsog fœðunni, til þess að halda við heilsu og lífi. Eg er skírður til trúarinnar á þríeinan guð, og svo erum vér allir; inn í kristinna manna félag, inn í samfélag guðs bai'na erum vér allir teknir á þann hátt, að guð gefur oss sig svosemföður, svo sem frelsara,svo sem fræðara og huggara, svo að vér höfum af öllu nóg til líkama og sálar fyrir þetta líf og hið tilkomanda, ef vér viljum þiggja gjöfma og í henni og af henni lifa, þegar vér komumst til vits og ára. — Ekki svo að skilja, að ég skilji, hvernig guð er þríeinn. En ég meðtek þennan leyndardóm, sem birt hefir sig í yfirnáttúrlegri kærleiks- opinberun, með þakklátri tilbeiðslu. Mér virðist og sá mætti heimsk- ur vera. sem hugsaði sér að geta kannað til fulls djúp guðlegr- ar veru. Á gjöfina brestur ekkert af guðs hendi; um ])að munu þeir allir vitni bera, sem viljað hafa einlæglega tileinka sér gjöfina. En jafnframt munu þeir kannast við brest sinn í því, að þiggja hina dýru gjöf réttilega. Mér þykir fleira í metum bafandi en það, sem mér var veitt að gjöf i skírn minni; ])að teygir mig frá gjöfinni góðu og togar n)ig að sér. Eg dregst í ýmsar áttir, stundum að guði, stundum frá guði, stundum að perlunni dýru, stundum að því, er ég ætti að farga og láta fyrir dýru perluna. Eg er veikur, veðurbarinn reyr, sem veit og finn, að ekkert og enginn getur bjálpað mér og bjargað annar en guð sjálfur, hann sem erí veik- um máttugur. Því er mér sárt um trú mína, um þá trú, sem ég er skírður til og uppfræddur i, hefi staðið á einsog grundvelli, þó að mörg hafi misstigin orðið, bygt ofan á mitt Iíf og líf þeirra, sem ég hefi haft þjónustu hjá — og vil deyja upp á. Mér er sárt um trú mína á þríeinan guð, og ég þykist í því efni vita, að ég eigi sammerkt við yður, kæru bræður. En smámsaman eru að heyrast raddir frá löndum vorum, sem vilja raska þessari trú og rýra hana, svo að hún fullnægir ekki sálarþörf minni og meðbræðra minna svo

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.