Verði ljós - 01.05.1904, Qupperneq 5

Verði ljós - 01.05.1904, Qupperneq 5
VERÐI LJÓS! 69 en þetta á ckki að skiljast eftir orðunum. Vér erum þeir, sem höfum á því hinn rétta andlega skilning; eftir þeim skilningi er hann að eins maður, og í því efni berum vér fyrir oss Pál postula, því hann hefir einmitt þann rétta skilning á Kristi, þegar hann er rétt skilinn. Hvað segir ])á Páll um guðdóm Krists? Idann segir svo Kól. 1, 16: „I honum voru allir hlutir skapaðir á himni og jörðu, ])að sen) sézt og það sem ekki sézt; allir hlutir hafa verið skapaðir fyrir hann og til hans, og í honum eru allir hlutir fólgniru. Filip. 2,6: „Sem, þó hann væri í guðs mynd, mat það ekki herfang, að hann var guði jafn“. I 1. Kor. 8, 6 eignar postulinn Kristi i fyrir- tilverunni sköpun alls. „Vér höfum ekki nema einn guð föð- urinn, frá hverjum allir hlutir eru og vér til hans, og einn drottin Jesúm Krist, fyrir hvern allir hlutir eru og vér fyrir hann“. Mundi hann hafa eignað skapaðri veru sköpun heimsins?“ I 1. Kor. 10. 4 segir postulinn, að Kristur sé sá, er hafi verið leiðtogi og fræð- ari Israelslýðs á ferðinni um eyðimörkina, sá, er hafi svalað lýðn- um og satt hann: „Kletturinn (eða hellan) var Kristur". Eða hvað segjum vér nm Róm. 9, 5: „Kristur er af feðrunum að hold- inu til, hann sem er yfir öllu guð blessaður um aldir“, og „fyrir honum skulu öll kné beygja sig og hver tunga játa, að Jesús Kristur er droltinn, guði föður lil dýrðar“, segir Páll á öðrum stað (Filip. 2,9.—11.) Væri ekki ofdirfð, að fara slíkum orðum um nokk- urn mann, og er þá ekki Páll samdóma guðspjallamönnunum um guðdóm Krists? Til guðs verður ekki komist með neinu jarðnesku skynjunar- færi, en hann hefir opinberað sig mönnunum i syninum, og er hann því einnar og sömu veru og faðirinn. Það er gefið til kynna með því, að kalla hann „orðið“, „orð lifsins“ (Jóh. 1. 1 Jóh. 1.), „orð guðs“ (öpinb 9, 18), „ímynd hins ósýnilega guðs“, segir Páll (Kól. 1, 15.), „Ijómi guðs dýrðar og eftirmynd veru hans“ (Hebr. 1. 3.) — En svo er hann með berum oröum nefndur guð og sagt, að hann sé fæddur i eilífðinni, þar sem alt hið endan- lega sé skapað og orðið til i tímanum. „Hann er frumgetningur alls þess skapaða“ þ. e. fæddur áður en alt var skapað. Svo segir Páll Kól. 1, 15. Oss hefir guð tekið sér fyrir börn, en Kristur er á sérstæðan, beinan hátt sonur föðursins, og af þvi að hann er i þeirri sérstæðu sonarstöðu, komast allir aðrir í sonarstöðu hjá Guði. Hann er nefndur Guðs e igin n eða einkasonur. (Róm. 8, 32.), sem euginn annar er nefndur, og eingetinn sonur (hjá Jóh. vtða).

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.