Verði ljós - 01.06.1904, Side 4

Verði ljós - 01.06.1904, Side 4
84 VERÐI LÓS! Er þar fyrst til að telja það, sem engillinn sagði við konurnar hjá gröíinni: Hann er upprisinn frá dauðum“. Þetta er samróma vitnisburður guðspjallamannanna Matth., Mark. og Lúk. Eftir upprisuna birtist Kristur: 1. Maríu Magdalenu og konum þeim, er voru í för með henni (Matth. 28. Mark 16. Jóh. 20, 14.-17.). 2. Lærisveinum þeim, sem voru á leiðinni til Emaus (Lúk. 24,13.). 3. Símoni Pétri (Lúk. 24,34: „Sannarlega er drottinn upprisinn og hefir birzt Simoni“). 4. Postulunum (Lúk. 24,35.): „Þegar þeir voru að tala um þetta, stóð hann sjálfur meðal þeirra og segir: „friður sé með yður“. Jóh. hefir sömu orðin og bætir við, að hann hafi sýnt þeim hendur sínar og síðu, og lærisveinarnir hafi orðið glaðir, er þeir sáu drottin. Mark. (16, 14.) segir: „Hann birtist þeim ellefu, er þeir sátu yfir borðum og álasaði þeim fyrir vantrú þeirra, að þeir hefðu ekki trúað þeim, er höfðu séð hann upp- risinn“. „Séður af Kefasi, og þar eftir af þeim tólf“ segir Páll (1. Kor. 15, 5). 5. Þegar hann birtist lærisveinunum ásamt Tómasi, sem áður er getið og Jóh. segir frá í 20, 26.—29. 6. Við fiskidráttinn í Galíleu (Jóh. 21, 1). 7. 500 bræðrum á fjalli nokkru í Galíleu eftii* vitnisburði Páls (1. Kor. 15, 6). 8. Jakobi (1. Kor. 15, 8). 9. Postulunum í Jerúsalem. 10. Postulunum, þar sem hann sté upp lil himna (Lúk. 24, 50. Mark. 16, 19. Post. gjörn. 1, 6. o. n. v.). Guðspjallasögurnar færa ekkert orð að því, sem þeir segja oss frá, er neita vilja upprisunni, að lærisveinar Jesú hafi svo fastlega búizt við því, að hann mundi upprísa, að ]»eim hafi þótt það bera fyrir sig, sem ekki var, og séð ofsjónir, er sögur hafi svo mynd- ast út af á eftir. Aftur segir guðspjallasagan oss, að lærisveinarnir hafi verið mjög svo tregir til að trúa upprisunni. Hjá Mark. (16, 11. ) stendur: „Og er þeir heyrðu, að Jesús væri á lífi og hún (þ. e. María Magdalena) hefði séð hann, trúðu þeir ekki“. „Orð þessi (þ. e. kvennanna um upprisuna) voru í augum þeirra eins og hé- gómi, og þeir trúðu konunum ekki“ (Lúk. 24, 11). — Kristur á- lasaði þeim fyrir vantrú þeirra (Lúk. 24, 25, og n. v.). Þeir urðu skelfdir og hræddir, þegar þeir sáu drottin meðal sín, svo að hann varð að sanna þeim það áþreifanlega, að liann hefði hold og bein

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.