Verði ljós - 01.06.1904, Blaðsíða 5

Verði ljós - 01.06.1904, Blaðsíða 5
VERÐI LJÓS! 85 (Lúk. 24, 86—43). Tómas vildi ekkt trúa nema liann fengi færi á að láta fmgur sinn í naglaförin og leggja hönd sina á síðu hans (Jóh. 20, 25), en þá voru líka tekin af öll tvímæli fyrir honum um upprisu og guðdóm Jesú. Postularnir fóru síðan út um heiminn og vitnuðu um upprisu drottins Jesú með miklum krafti (Post. gjörn. 4, 33.). og hversu mikinn þátt luin ætti í hjálpræði voru; að hann væri uppvakinn oss til réttlætingar (Róm. 4, 25), að trú vor sé ónýt, ef hann sé ekki upprisinn, og að vér mundum með honum og fyrir hann upprísa (1. Kor. 15). Upprisan breytti sabbatsdeginum i drottins dag, dag drottins hins upprisna. Ovinir Jesú gerðu sitt til að sanna upprisu hans. Gröfin var innsigluð með yfirvalds innsigli og varðmenn settir til að gæta hennar, til þess að fyrirbyggja öll svik (Matth. 26, 62—66). En sjálfir urðu þeir að beita svikum og lygi, þá er atburðurinn var orðinn, til þess að þetta skyldi ekki berast út og verða tekið trú- anlegt (Matth. 28, 11—15). Réttarrannsókn um málið forðuðust ]>eir, eins og nærri má geta. Enn vil ég vekja á ]>ví athygli vort, bræður, hversu afartorvelt er að samrýma ýms ummæli Jesú um sjálfan sig við þá mann- eðlisgöfgi, sem guðdómsneitendurnir þykjast sjá í Jesú og eigna honum, sé hann ekki guðmaður. Eftir mínum skilningi væru slík orð ofdirfsku orð og skrum í munni hvers eins og einasta manns annars en guðmannsins, og væru því ekki til ]>ess löguð að vekja virðingu eða minna á fyrirtaks manneðlisgöfgi, heldur hið gagnstæða. Hver manna gæti tekið sér í munn orð Jesú (Matth. 5, 11): „Sælir eruð ]>ér, ]>á er menn atyrða yður og ofsækja og tala gegn yður alt iltfyrir mínar sakir“, eða hvernig mætti öðrum eins orð- um og þessum fara um nokkurn annan mann en guðmanninn: „Herra, herra, höfum vér ekki með þínu nafni spáð, með þínu nafni gert mörg kraftaverk ?“ (Mattli. 7, 22.). „Komið til mín allir þér, sem erfiðið og eruð hlaðnir þunga, og ég mun veita yður hvild“ (Matth. 11, 28). „Hver sem kannast við mig fyrir mönnum, við hann mun ég einnig kannast fyrir föður minum á himnum“ (Matth. 10, 32.). „Mannsins sonur mun senda engla sína, og þeir munu saman safna úr ríki hans öllum hneykslununum og þeim, er ranglætið fremja“ (Matth. 13). „Mannsins sonur mun koma í dýrð föður sins, og þá mun liann gjalda sérhverjum eftir verki hans“ (Mattli. 16, 27). „Þér sem hafið fylgt mér, munuð í endur- fæðingunni, þá er mannsins sonur situr í hásæti dýrðar sinnar,

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.