Nýjar kvöldvökur - 01.07.1907, Side 3

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1907, Side 3
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 171 ekki kann að rita dagbók, sem ekki yrði að fundið. Rað er þó ætíð leyfilegt að halla til um smávegis, hvar sem er á hnettinum. «Fyrirtækið» hafði verið sent til Antigúa, og Eðvarð fanst vera bezta tækifæri til þess að koma við hjá Klöru sinni. Hann lét því reka skamt undan suðuroddanum, og sá þegar að hvítt gluggtjaldið blakti út úr glugganum. ^Parna er það, herra» sagði einn foringja- efnanna, sem stóð skamt frá honum, — hann hafði komið þar svo oft, að öll áhöfnin vissi um ástafar hans. «I3arna dregur hún upp friðar- flaggið.» «Verið þér nú ekki að neinu rausi, Mr. Warren» svaraði Eðvarð hlæjandi, «hvar hafið þér fengið fréttir um það?» «Og maður ræður það svona af orsökum og afleiðingum, herra; eg veit ég á að fara á Iand og bíða eftir yður í kvöld.» ^Rað er ekkert ólíklegt — en dragið þér brandseglið yfir stag —við verðum að fara yf- ir fyrir oddann.» Alt stóð heima. Sama kvöldið flutti for- ingjaefnið skipstjórann á land, en «Fyrirtækið» lá með makindum með eitt ljósker í stafni. «Ennþá einu sinni, elsku Klara mín,» sagði Eðvarð, slóslæðu hennar til hliðar og faðmaði hana að sér. <Já, Eðvarð, ennþá einu sinnu, — en eg er hrædd um, að það verði bara ennþá einu sinni; þernan mín, hún Inez, hefir verið hættulega veik, og skriftast fyrir Ríkardó munki. Eg er dauðhrædd um að hún hafi sagt honum f'‘á öllu saman í ósköpunum — því að hún taldi víst, að hún mundi deyja. — Nú líður henni betur.» «F*ví ertu svo hrædd um það, Klara. > «Ö, þú veizt ekki hvað mikið flón ínez verður, þegar hún veikist og verður hrædd. Okkar trú er ekki eins og ykkar.« «Nei, elskan mín, það er hún ekki; en eg skal kenna þér aðra, sem er betri.» ^ey, þey, Eðvarð, þetta mátttu ekki segja; heilaga mær, ef hann Rikardó heyrði þig segja þetta! Eg held endilega að Inez hafi sagt honum frá öllu saman,því að hann hvessir svörtu augun svo alvarlega á mig. í gær gat hann þess við mig, að það væri langt síðan eg hefði skriftast.» «Segðu honum bara að honum komi það ekkert við.» «Já, en það kemur honum einmitt við. Eg mátti til að skriftast fyrir honum núna í kvöld. Eg sagði honum frá ýmsu, og] svo spurði hann mig, hvort þetta væri alt það, sem hvíldi á samvizku ininni. Hann ætlaði að reka mig í gegn með augunum. Eg skalf og nötraði, af því að eg gerði mig seka í ósannindum, — því að eg sagði að þetta væri alt, sem eg væri mér meðvitandi. «Eg skriftast synda minna að eins fyrir skap- ara mínum, Klara, og ásta minna að eins fyrir þér. Fylgdu mínu dæmi, elskan mín!» «Eg skal hlýða þér til hálfs —eg skal ekki skriftast ásta minna.» «Og syndir áttu engar til, Klara mín; þú hlýðir mér þá í öllu.» sRegi þú, Eðvarð, þetta máttu ekki segja; við erum öll syndarar, og það er stór höfuð- synd að elska þig, villutrúarmanninn. Heilaga mær, fyrirgefðu mér — eg get ekki aö því gert.» «Ef það er eina syndin þín, elskan mín, þá get eg með góðri samvizku gefið þér synda- lausn.» «Ó, Eðvarð, þú mátt ekki hafa þetta í gamni. En heyrðu nú, hvað eg hefi að segja. Hafi ínez skriftast, og játað alt, þá verður mín leitað hingað, og við megum ekki oftar hafa stefnufund — að minsta kosti ekki hér. Rú þekkir litlu víkina á bak við klöppina--það er ekki mikið lengra burtu; þar er hellisskúti, og Jaar get eg beðið þín; þar verðum við að hittast næst.» «Jæja, svo hittumst við þar; er það ekki of nærri fjörunni? verðurðu ekki hrædd við mennina í bátnum?— þeir geta séð þig.» «Við getum vel gengið burtu frá sjónum. Rað er bara hann Ríkardó, hann einn og enginn annar, sem eg er hrædd við —og María mey. 22*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.