Nýjar kvöldvökur - 01.07.1907, Blaðsíða 4

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1907, Blaðsíða 4
172 NÝIAR KVÖLDVÖKUR. Guð minn góður’— ef hann faðir minn fengi að vita þetta, þá fengjum við aldrei að sjást aftur —aldrei,» — og Klara lagði ennið á öxlina á Eðvarði og grét sáran. «Rað er ekkert að óttast, Klara —þey, þey, eg heyrði skrjáfa í gullapöldrunum þarna — heyrirðu það ekki ?« «Jú, jú» hvíslaði Klara í skyndi, «það er einhver! flýttu þér á stað, elsku Eðvarð.» Klara slepti honum, og fór eins og örskot inn í lundinn. Eðvarð hörfaði sömu leið til baka, þaut ofan mjóu klappagötuna ofan í bátinn. «Fyrirtækið» kom heim, og Eðvarð kvaddi dyra hjá aðmírálnum. «Eg hefi starf handa yður, hr. Templemóre» sagði aðmírállinn, «þér verðið að seglbúa yð- ur nú þegar, og sigla aftur á haf út. Vér höf- um fundið jafningja yðar.» «Eg ætla að vona að eg finni hann, herra» svaraði Eðvarð, «Það vona eg líka, því að ef þér verðið svo heppinn að geta gefið góða skýrslu um það, þá fáið þér annan sóflinn til á liina öxlina. Víkingaskonnortan, sem hefir herjað Atlants- hafið svo lengi, og gert það ótrygt yfirferðar, hefir sézt í grend við Barbadoes, og «Amelia» hefir elt hana; en það er svo að sjá, sem ekkert skip í flotanum komist í hálfkvisti við hana með gang, nema ef það skyldi vera «Fyr- irtækið». Síðan hefir hún tekið tvö Vesturind- íaför, og hefir sézt stefna með þau ofan til Guínenstrandar. Eg hefi nú helzt í hyggju að bæta þrjátíu mönnum við áhöfn yðar, og senda yður svo á eftir víkingnum.» ^Rakka yður margfaldlega fyrir herra,» svar- aði Eðvarð og réð sér varla fyrir gleði. «Rað er ágætt. Biðjið herra Harðly að færa mér skipanirnar er fólkið snertir, og skipunar- bréf yðar; svo skal cg skrifa undir hvortveggja; en munið eftir því, hr. Templemóre, að það er harður karl í horn að taka, piltur sá. Verið þér bara gætinn —hraustur og hugrakkur veit eg þér eruð.» Eðvarð Templemóre lofaði öllu því, sem flestir menn eru vanir að lofa þegar líkt stend- ur á, og innan annars kvölds var «Fyrirtækið» komið talsvert langt út á haf, undir öllum seglum, er hún gat borið. XIII. KAPITULI. Landganga. Jarðeign sú, sem Don Kúmanos flutti sig á með hyski sínu og Fransiskó náði frá mynn- inu Magðalenufljótsins, og margar mílur inn í land. Jarðvegurinn var þar ágætur, saman- borið flóðlaud; var það því ein frjó, grösug, löng engjaspilda, sem moraði í nautahjörðum. Bærinn stóð ekki rneir en svo sem fimmtíu faðma frá árbakka þessa stórfljóts; lá frá því vík ein alt upp að úthýsunum. Don Kúmanos átti ann- ars fleiri jarðir ennþá verðmeiri en þessa, því að hann átti gullnámu svo sern tuttugu mflur upp með fljótinu, við bæ þann er Jambranó heitir, og hafði hann fengið þaðan stórfé á seinni áriim. Rauðinn var fluttur ofan 'eftir fljótinu á bátum, og síðan blásið gullið úr honum í úthýsunum við ána. Ress skal getið, að þessi spánski aðalsmað- ur hafði fjölda fólks í vinnu; voru þar um hundrað manns á heimili, sem unnu að rauða- blástri í úthýsunum eða fengust við akuryrkju. Fransiskó var þarna langan tíma og Ieið hið bezta; hann var orðinn trúnaðar- og tilsjónar- maður Don Kúmanosar yfir búi hans og reynd- ist því vel vaxinn, og var talinn til fjölskyld- unnar þar, vegna álits þess, er hann liafði náð. Einn morgun var Fransiskó á leið ofan til bræðslukofanna til þess að opna lúkurnar á þiljubátum þeim, sem komnir vorufrá Jambranó með gullrauða ; námustjórinn lokaði þeim ætíð með hengilásum, en Don Kúmanos hafði lykla, sern gengu líka að þeim; gat þá einn af yfir- mönnunum þess, að skip eitt hefði varpað akk- erum við fljótsmynnið daginn áður, en hefði dregið þau upp um morguninn óg væri nú á vakki þar fram og aftur með ströndinni.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.