Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.07.1907, Qupperneq 18

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1907, Qupperneq 18
186 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. ur á þá, og vakti við þá fjörugar samræður. Svo fór hann að núa á sér hendurnar, þykkar og feitar, og sagði í gletni: «Við drekkum nú líklega út þennan skírnartollinn: Aðólfi hafði þá gramist það, þótt hann lítill væri, að presturinn skyldi vera að minnast á skírnartoll við slíkt tækifæri.» En nú hugsaði hann á þá leið: «Raðget- ur verið, að þessi maður hafi verið saklaus á unga aldri, og helgað sig köllun sinni af hrein- um hvötum, og barist við freistingarnar. En hann þurfti að lifa. — Brauðið var lé- legt, en hann hafði þungt heimili, og svo varð hann að hafa úti allar klær, til þess að komast af. F*á sljóvgaðist tilfinningin, og hann varð auraþræll, en gleymdi að þjóna drotni. Honum datt í hug gamla máltækið: «Seint fyllist sálin prestanna.» Ef prestarnir hefði föst laun, þá hefði þessi málsháttur aldrei til orðið. Pá spurði Aðólf sjálfan sig: «Eru þá engir prestar góðir og göfuglyndir?» Þeir eru til að vísu; en það get- ur enginn gizkaðá,'hve harðabaráttu þeir hafa þreytt. Pað er einkamál guðs og þeirra. Hann langaði alt í einu til þess að verða trúboði. Hann vildi boða trú heiðingjum og guðleysingjum, með kærleika og sjálfsafneitun, og virða allar hættur að vettugi. Hann varð hrif- inn við tilhugsunina, hjartað fór að slá ótt og títt, og blóðið streyindi fram í hverja æð. Þá braust fram andstæð hugsun: Pað var lítihnannlegt að víkja af verði, eins og ótryggur liðsmaður. Hann vildi heldur gegna köllun sinhi, stríða og sigra. Hann gekk þarna fram og aftur alla nótt- ina. Hafið, sjálfskapað og alfrjálst var honum á aðra hönd, en skemtigarðarnir, tilbúnir og tízkubundnir á hina. Pað voru nábúar, en haf- ið hélt samt frelsi sínu óskertu. Aðólf vildi líkjast því. Hann vildi ekki láta freistingar né vanans villur fá vald yfir sér. Hann vildi brjóta bág við tízknua, og boða guðs orð eftir sannvizku og sannfæring sjálfs sín, en ekki sem þulu, vissa og vanabundna við hvert tækifæri. Tunglið gekk undir, og það varð dimt um stund. Svo fór aftur að bera á ofurlítilli Ijós- glætu, sem reyndi að eyða myrkrinu. Það var dagsbrúnin; og myrkrið flúði um síðir alger- lega fyrir sólarljósinu. Pá varð Aðólfi skaprórra. «Nei,» hugsaði hann með sjálfum sér, «það þarf engin heróp né háreisti til þess að Ijósið yfirvinni myrkrið. Pað þarf einungis gott hjarta og öflugt viljaþrek. ... Pá birtir smátt og smátt, únz sólin vermir ált geislum sínum. Aðólf gekk í hægðum sínum heim að húsi því í borginni, sem hann hafði leigt herbergi kvöldið áður. Hann þurfti að fara af stað heim, því að það var búið að biðja hann að jarð- setja mann daginn eftir, og hann þurfti að búa sig undir að halda líkræðuna, sem hann hafði verið beðinn um. Pað var erfitt umhugsunarefni. Pað var einn ríkasti og helzti borgari bæ- jarins, sem dáinn var, og hann hafði baðað í rósum alla sína daga. Hann hafði ausið fé á báðar hendur til fátækra og ýmsra góðgerða- fyrirtækja, og látið hvarvetna mikið á sér bera, svo að allir dáðust að honum. En Aðólf, sem leitaði uppi syndarana, og huggaði þá hryggu og þjáðu, hafði skygnst dýpra. Hann hafði rakið feril lasta og ódreng- lyndis heim að húsi ríka velgjörðamannsins. Hann gat ekki haldið neina lofræðu yfir honum, né lofað góðgerðasemi hans. Góðgerða- semin hafði verið sauðargæra sem huldi úlfinn. Ættingjar þess dána höfðu talað við Að- ólf áður en hann fór til Kaupmannahafnar, og lýst æfiferli hans eins og helgasta dýrlings, en Aðólf Iét þá á sér skilja, að sér væri kunnugt líf hans og starf. Þegar Aðólf kom lieim, fékk hann bréf frá ekkjunni, og afarmikla fjárupphæð í ávísun, borg- un fyrir Iíkræðuna, sem hann hafði verið beð- inn um. Aðólf fölnaði, er hann sá upphæðina. «Fémúta!» Orðið brauzt fram á varir hans eins og óp, Hann sló utan um ávísunina og endursendi ekkjunni hana. Hann var svo æst-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.