Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.11.1910, Qupperneq 16

Nýjar kvöldvökur - 01.11.1910, Qupperneq 16
156 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Steini kvaddi Gísla í Iágum rómi, greip kassann og hljóp fram af varpanum. »Ætlarðu nú að gleyma eggjunum þínum eftir allt saman — þau eru hérna suður við bæjarkampinn,» kallaði Gísli á eftir honum. Svo fór hann að búa sig á stað úteftir. — — — — Steini vaknaði fyrir allar aldir morguninn eftir, þó svefntíminn hefði ekki orð- ið langur um nóttina. Mamma hans var ekki farin að róta sér og reis hissa upp í rúminu, þegar hún sá, að Steini var kominn framan á. Hann tók eftir því og flytti sér að segja um leið og hann stneygði upp á sig skónum: «Rú þarft ekki að vera hrædd um, að eg strjúki núna burtu, mamma, — eg ætla bara að skjót- ast ofan og kem undir eins aftur.« Svo hvarf hann fram úr dyrunum. Móðir hans hafði verið orðin hrædd um hann kvöldinu áður og vakti eftir honum. En hann var svo slunginn að laumast heim að bæiium, án þess hún yrði vör við; og gat skotið kassanum og eggjunum inn í hesthús- kofanu á bak við bæinn. Mömmu sinni mætti hann svo í bæjardyrunum allslaus og lézt vera heldur dauíur í dálkinn. En hann hló í hug- anum; þegar hún fór að atyrða hann fyrir uppátækið, og hann svaraði engu orði, held- ur labbaði rakleiðis inn, át vætuspóninn sinn og fór svo að hátta og sofa. — Steini flýtti sér að sækja feng sinn út í kofann. Mamnia hans var sezt framan á, þeg- ar hann kom inn í baðstofudyrnar. «Þetta er aflinn minn í gærkvöldi, mamma,« sagði hann og rétti henni kassann og eggiti. «Líttu á, mamma! — nú getum við haldið upp á hátíðina eins og aðrir.» Hún varð alveg hissa, og nú vaknaði Ól- afur fyrir ofan hana og Ieit upp. Og nú sagði Steini alla söguna, nema hvað hann þagði al- veg utn það, þegar honum var boðinn kass- inn í fyrra skiftið. «Elsku drengurinn minn,« sagði móðir hans og faðmaði hann að sér; «Petta verður sann- kallaður hátíðisdagur fyrir þig og okkur öll saman. Eg, sem var farin að halda, að ekkert mundi rætast úr. Og blessunin hún Sigga litla, — það verður gaman að fá hana úteftir í dag. — En eg held það veiti ekki af því, að eg fari að hypja mig fram og taka uppeldinn — það verður eitthvað með hann að gera hérna í þetta sinn. Blessaður Ólafur, gefðu mér nú spýtu í eldinn eða eitthvað, sem skerp- ir duglega hitann !« Ólafur reis upp í rúminu og fór að tína utan á sig fötin. En Steini fór að klæða sig í vöðuplöggin. Móðir hans spurði, hvort hann ætlaði aðljúka sér af með að ganga við kindurnar. »Já,« svaraði Steini, en eg verð sjálfsagt ekki mjög lengi núna. Að því búnu verður gaman að koma heim — eins og æfinlega,« bætti hann við og fór. Steini var léttur í spori við ærnar fþennan morgun. Nú var líka skipt um veður, komið glaðasólskin og himininn heiður og blár, og leit út fyrir mikinn hita um daginn — reglu- leg hvítiasunna. Rað lá líka vel á öllum skepn- um. Lömbin léku sér kringum ærnar, hestarn- ir kljáðust í haganum og fuglarnir hoppuðu og sungu. Allir fögnuðu hátíð vorsins. Rað var líka hátíð í huga Steina litla. Beisk- jan var horfin úr sálu hans og kuldinn frá því daginn áður, alveg eins og skýjakápan gráa hafði sópast burt af himninum fyrir sól og sumri. Hann leit bæði aftur og fram undan sér, en hugsanirnar voru óljósar ennþá og sund- urlausar, eu Ijúfar og barnslega dreymandi. Honum fanst hann eygja takmai k, eitt af öðru, í hálfgegnsærri Ijósmóðu Iangt, langt í burtu. Ró stöðvaðist hann ekki við neitt þeirra að ráði. En ef hann hefði getað skipað hugsun- um sínum niður á skýran og ákveðinn hátt, þá hefði niðurstaðan líklega orðið eitthvað á þessa leið: «Eg ætla að reyna af fremsta megni að hjálpa þeim, sem bágt eiga og verða útundan í lífinu. Með því ætla eg að hefna mín-------- og þín líka, mamma!« Björn austræni.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.