Nýjar kvöldvökur - 01.11.1910, Síða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.11.1910, Síða 19
MÓÐIR SNILLINGSINS. 259 «Hvers son er hann skrifaður?» «Hann var skrifaður Hansson í kirkjubæk- urnar, og eg trúi að hann sé nefndur svo alls- staðar. Geirlaugar-Reynii var hann venjulega kallaður fyrir norðan.» »Var ekki neitt getið til eða vitað um faðernið?« «Eitthvað var verið að geta sér til, bæði rétt og ekki rétt, en fáir eða engir vissu það sanna, nema eg.» «Svo að þú veist alla þá sögu með sann- indum ! Viltu ómögulega segja mér alt, sem að þú veist um móður hans? Mig langar svo mik- ið f'I að vita, hvernig maður þessi er til kom- 'nn. Mér lízt svo framúrskarandi einkennilega vel á manninn. Mig langar til að vera — — móðir hans.» «Eg hefi engum manni sagt sögu hennar, hví að hún trúði mér fyrir því, sem fáir eða engir tala um við aðra. Hún var svo hrein- skilin og sönn, einlæg eins og barn, að það hefði verið stórsynd að vera henni ótrú, ennúer Þetta alt gamalt og gleymt, og hún komin burt frá bágindum sínum, því bágt átti hún, bð sjálfri sér mætti um kenna, alténd með sumt. Hún hafði svo margar undarlegar skoðanir á hlutunum, að það var engin von, að henni blessaðist sá hugsunarháttur, þó engum vildi hún mein gera, það vildi hún ekki.-------En eg get ekki sagt þér neitt meira um þetta núna, en ef að þig langar til að heyra sögu hennar, bá máttu koma til mín eitthvert kvöldið í rökkrinu, við skulum þá minnast á hana sem að enginn man eða minnist á nú.« 'Segðu mér einungis eitt; skeytti maður bessi ekkert um móður sína, þegar að hann vitkaðist?» «Hann var fjögra ára barn, þegar að hún fór svona, og það var aldrei á hana minst við hann, fyr en hann var kominn til vits, þá sögð- Utn við honum frá móður hans hvar, hún væri °g að hún væri veik.» «Skeytti hann þá ekkert um hana; að vilja sjá hana þó að — — —» *Jú, jú! hann bað okkur elnu sinni um að lofa sér að fara þangað, sem að hún hélt til, svo að maðurinn minn fór þangað með honuni, en það varð ekki drengnum til annars en angurs, hún mundi ekkert eftir umliðna tím- anum eftir það, að hún varð svona, gleymdi al- veg barninu sínu, sem að hún elskaði þó næst- um yfirdrifið, gleymdi öllu, og þeim báðum þá Iíka-------» xPeinj báðum — hverjum?» «Nú drengnum sínum og föður hans.» «Elskaði hún--------» «Góða nótt, og komdu þá annaðkvöld ef þú vilt.». «Góða nótt! Eg kem áreiðanlega, frænka!» Mér varð ekki svefnsamt þá nótt. Hugs- anirnar um yndislega manninn unga, með snill- ingsglampann í gráu augunum, ogþunglyndis- keiminn í djarfmannlega, sigurglaða svipnum, ásóttu mig andvaka, og svo hún móðir hans! -------Að hugsa sér að hann hallaði sér ofan að manni og segði: inamma mín. Mér var sem að eg sæi munninn á honum með nautnaþorst- ann á neðri vörinni, og svo rómurinn!--------- Retta ásótti mig; eg sofnaði þó loks og vakn- aði aftur án þess að eiga hann, eyddi deginum til óþarfa og flýtti mér svo strax, þegar skyggja tók, til frænku til að fá «meira að heyra.» Hún sat ljóslaus með prjónana sína og var ein. Það þótti mér bezt, og eg stórhlakkaði til, eins og eg hlakka til að liggja lesandi í rúmi mínu á kvöldin, þegar eg hefi eitthvað gott að Iesa.» «Eg er búin að taka hér upp bréfin sem að hún skrifaði mér» byrjaði frænka. «P*að er bezt að þú sjáir þau eins og þau eru, fyrst að eg annars er að bulla um það altsaman, sem ekki ætti þó að vera. Rú mátt ekki láta neitt á þessu bera, meðan Reynir lifir, hann fer nú að vísu af landi burt aftur strax í haust-----» «Fer hann?» «Já, hann er ráðinn sem einsöngvari suð- ur á Rjóðverjalaudi, þar er honum boðið feiknahátt kaup, hér hefir hann ekkert að lifa af sem söngmaður. Hann gjörir ráð fyrir að dvelja hér í sumar, svo fer hann í burtu aftur.» «Nú, fer hann! og mér fanst eins og eg 33’

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.