Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 3

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 3
Dr blöðum Jóns halta. Eftir séra Jónas Jónasson. 1. Fréttirnar í selinu. Eg var að koma ofan af heiðinni. Loksins eftir langa mæðu, og það held eg orðið jöfnu báðu, miðsmorguns og dagmála. Hesturinn minn og eg vorum báðir orðir sárlatir og dauðuppgefnir. Eg var á einum hesti skjótt- um, mesta úlfaldagrip, og hafði eg riðið hon- um einhestis í allar mfnar skólaferðir. Og eg þorði líka alt af bjóða hverjum út sem vera vildi með það, þótt hann enda væri á tveim- ur, að eg skyldi ekki verða á eftir, sízt þegar til lengdar léti. Eg hafði haldið svona áfram hérumbil síðan stundufyrir dagmál daginn áður. Reyndar hafði eg skroppið af baki svona við og við, þar sem voru þægilegir hagablettir, til þess að láta þann skjótta grípa niður og jafna sig. En þótt við héldum svona áfram hgggt og sígandi, bar ekki á því að við yrðum neitt sérlega daufir eða doðalegir fyrri en með morgninum. Það var blíðalogn, hvergi skýjadrag á lofti. Enginn andvari bærði svo mikið sem við einu einasta blqmi eða brumvendi þar á heiðinni. Rað var undarlega blundsæll og draumvær vormorgun- inn, þegar maður hefir vakað alla nóttina, eða svo reyndist okkur Skjóna. Sólin skein steik- jandi og brennandi og kastaði töfragliti yfir daggsjóinn. Rað var fögur sjón að sjá — margfalt, margfalt fegurra litskrúð og girnilegri Prýði, en f nokkurri búð er að sjá eftir að glingurvaran er komin á vorin. En það var ekki svo lengi sem þess naut. Sólin hitaði döggina, blómkollana og jörðina; daggsjórinn rann f sundur og leystist upp í hálfgagnsæia, bláleita móðu; gufu Iagði upp af votlendinu; hún smaug eins og lifandi bönd eftir dældun- um — og það var líkast því að sjá yfir rúst- irnar eins og þær væri ótal hólmar upp úr þegjandi, krystaltæru fljóti, sem streymdi kyr- látt og niðlaust jafnt forbrekkis sem andbrekk- is. Pessi draumljúfa kyrð, þessar undarlegu straumleiðingar, sem einstöku sinnum getur að sjá á brennheitum vormorgnum og sumar- morgnum á heiðum og daladrögum á íslandi, hafa undarleg áhrif á mann. Það er eins og náttúran setji upp einhvern sparisvip, sem við erum ekki vanir við. Rað er einhver helgi- blær yfir henni. En það stendur ekki lengi, Hitamóðan leysist skjótt í sundur og rýkur út í loftið. Þokuslæðingarnar hverfa og loftið er jafntært og áður. Um þetta leyti dags ætlar svefninn altaf að sigra syfjaðan mann; að minsta kosti gætti eg ekkert að mér fyr en eg hrökk upp við það að sá skjótti hnaut um stein í götunni — og eg var nærri hrokkin af. — Hestinn hafði dauðsyfjað eins og mig. Eg leit upp og reif stýrurnar úr augunum. Eg sá ofan til sveitafjallanna; hnjúkarnir á milli dalanna gnæfðu langt upp fyrir heiðarflatnesk- juna framusdan mér, bleikir og sólroðnir á austurhlið, en austanmegin dalsins voru þeir dimmbláir og skuggalegir ílits. íblá móða lá eins og gagnsær glersjór á milli þeirra. Enn- þá gat eg ekki séð ofan í dalinn, en það var farið að halla undan fæti. Heiðarkvíslin var farin að verða svo ströng, að það var orðið gil að henni. En bláa móðan minti mig á gamla og góða vini, morgunkaffið og búverka- N. KV. V. 1.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.