Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 5

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 5
ÚR BLÖÐUM JÓNS HALTA 3 Eg kallaði óðara ti! kerlingar og sagði: «Gáðu að katlinum — það er að sjóða upp úr honum.« Kerling leit við og varð svo hverft við, að hún var nærri búin að missa trogið. En eg beið ekki boðanna, úr því hún var vant við látin, og brá mér sem skjótast út í kofann aftur og bjargaði katlinum, mætti kerlingunni með hann í dyrunum, heilsaði henni hlæjandi og fékk henni þann svarta. Kerling tók inér vel; hún hafði séð mig einu- sinni eða tvisvar áður og þekti mig. Það var því ekki að sökum að spyrja — hún tók mér eins og gömlum kunningja, enda hefi eg jafn- an átt því láni að fagna, að verða átrúnaðar- goð allra kerlinga, sem eg hef kynst; það hef- ir gengið öllu erfiðara með þær yngri. Hún bj'rjaði með að spyrja mig, hvort hún mætti bjóða mér að smakka skyr og rjóma. Eg var heldur á því, að lítið hefði verið um slíkt þar uppi á heiðinni í nótt. Meðan eg geiflaði á skyrinu, spurðumst við almæltra tíð- inda, en fátt bar þó sögulegt á góma, sem taki því að færa það í letur. Mest spunn- ust umræðurnar út af því, hvernig mjólkaði í selinu; bezt sagði hún mér að mjólkaði, ef fénu væri haldið frammi og uppi í Borgarrúst- um, en langmest væri smjörið, ef því vær haldið í Víðilágunum og upp hjá Grenis- hólunum; en samt heyrðist mér á henni, að húsmóðurinni þætti það aldrei um of, og fanst mér það ekki nema eðlilegt. Pegar eg var búinn að borða nægju mína af skyrinu, var kerling búin að hella á könn- una, og sýndist mér hún renna til hennar mjög hýru auga. Það leið heldur ekki á löngu að kaffið kæmi, og væri synd að segja annað, en það væri vel útilátið; pörin voru í vænna lagi, og sú tízka þektist ekki þarna uppi í ó- bygðum, að hafa borð á bollann; undirskálin var líka hálf eða vel það. Skjóni stóð úti. og nagaði grængresið úr selbrekkunni og var hinn rólegasti, þó það vaeri fremur snögt. Mér þótti synd að ónáða hann undireins, og sat því enn á meðan kerl- ing var að búa í strokkinn; eg varð líka hálf- feginn að hvíla mig ofurlítið og láta líða úr mér. Alt í einu sneri kerling sér að mér upp úr lokleysuskrafi og sagði: «Já, þér hafið náttúrlega ekki heyrt það, að hann er nýdáinn, hann Jón gamli halti, sem hefir verið á Dynjanda nú í nokkur ár?« »Hann Jón halti? Eg held eg kannist ekk- ert við hann —hvaða maður var það?« spurði eg. »Ja— þektuð þér ekki hann Jón halta — eg hélt að allir hefðu þekt hann, karlugluna, þá hann lifði,» svaraði kerling, »það er gott ef það á ekki að jarða hann í dag eða á morgun.« »Bjó hann á Dynjanda, þessi Jón?« »Ja-nei-nei, hann hefir aldrei tímt að búa á æfi sinni. Hann vantaði annan fótinn og gekk á einhverjum tréfæti — ja þvílíkt.» »Var hann þá á sveit?« »Nei, eg held síður; þetta var forríkur skratti, þó að það sæi ekki á honum. Ekki eyddi hann því í stássið. Hann átti margar jarðir og lifði af þeim, og nurlaði svo saman, það sem hann gat þar fyrir utan. Pað var undar- legur kar!.« Eg hafði gaman af að Iáta kerlingu rausa og ól því ögn á henni og sagði: «Já það er rétt — og i hverju helzt?« »Ja, það er nú ekki gott að telja þá alla upp í einu, taktana hans Jóns, þeir voru svo margir. Fyrst kól hann og misti fótinn, þeg- ar hann var um tvítugt — en ekkert hefi eg heyrt greinilega um það, hvernig það vildi til; en eitthvað hefi eg heyrt um það samt — jú. það er alveg satt, nú man eg það — það var víst sjálfum lionum að kenna — hún Rórkatla í Múlakoti sagði mér það einu sinni. Hann hafði komið að bæ, eg man ekkert hvar, í .hríðarkalsaveðri og verið illa útbúinn, og fólkið hafði ómögulega viljað láta hann fara lengra. En þvf var ekki viðkomandi. Hann dreif sig á stað, hvað sem hver sagði, út í hríðina, og ætlaði að ná til næsta bæjar; eg trú’ það hefði verið þar vinnukonukind, sem hann hafði ver-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.