Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 10

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1911, Qupperneq 10
8 NÝJAR KVKLDVÖKUR Og Skjóni fór að greikka sporið líka. Á langferðunum verður maðurinn og hesturinn að einni lifandi veru; báðir lifna og báðir dofna saman, eftir áhrifunum að utan. Við vor- um orðnir eins og nýir af nálinni eftir alt hugs- anamókið ofan sneiðingana. Rað var ekki nema drjúg bæjarleið út að prestsetrinu. Eg blakaði Skjóna aðeins með svipunni minni, og hann fór á harðaspretti út allar götur, og stanzaði ekki fyr en heima á prestsetrinu. Pá var liðið að dagmálum eftir gömlum búmannseyktum. Mér var tekið tiið bezta á prestsetrinu. Skóla- bróðir minn, prestssonurinn, var nú orðinn stúdent, og fór inn með mig, en lét flytja Skjóna á haga. Eg bað að lofa mér að sofa — en bað að vekja mig fyrir alla muni áður en jarðað yrði. [Framh.] Móðir! (Kveðja frá Islendingi erlendis.) Pú «eykonan forna* á öldunum blá, þú óðalið Sögu og Braga. Pín minning, hún ríkir svo heilög og há í huga mér, nætur og daga. Þú yljaðir sál minni ást þína við og ólst mig á brjóstunum þínum. Eg þráði það heitast, að finna þar frið og fórna þér kröftunum mínum, Eg skil ekki sjáifur hvort Rögn urðu reið og ræntu mig vonunum mínum; en Nornirnar, þær hafa lagt mína leið svo langt burt frá ströndunum þínum. Eg vissi að eg gat ekki lánað þér Ijós, sem leiðbeindi fólkinu þínu, en óskaði að findist þó örlítil rós í einhverju sporinu mínu. Eg hef máske valið of vandfarna leið og verið svo þollaus og «hálfur,« í gáleysis draumórum ganað mitt skeið og glatað svo vonunum sjálfur. En hvar sem eg velkist í veraldarál og villist um ókunnar slóðir, hver einasta hreyfing í anda og sál þér einni skal tilheyra, móðir! X -1- Z Mansöngur hjarðsveinsins. (Úr ensku miðaldarkvæði). Kom, ástmey kær, sem yndi ber, upp tii fjallanna og ver hjá mér, og skoðum þá fegurð um fell og dal er frið og unun oss veita skal. Hvílum þar rótt und háum tind’, hlustum á fugla’ og tæra lind kvaka’ og niða sinn ástaróð þar ullaðrar hjarðar gætir þjóð. Þar vil eg þér rósa- búa beð blóma angandi skrúði með, glitofinn kjól úr gleym-mér-ei og glólilju fald, er prýði mey; Og hlýjan möttul úr mjúkri ull eg mun þér gera með rauðagull, kögraðan, hnöppum hneptan barm, og hring af perlum um ljósan arm; Belti’ úr sóley og sefjareyr, . svo að þú skartir ennþá meir, með skelpöddupörum endum á. — Elskan mín vert’ og bú mér hjá. Af silfurdiskum, er sól skín frá, sæl eins og guðir við borðum þá, úr ebenvið borðið breitt með traf — bikar úr gulli drekkum af. Hjarðsveinar dansa og hefja söng, sem hljómar að aftni um klettagöng til ágætis mest og yndis þér. — Ef þetta hrífur, þá bú hjá mér. AGNAR.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.