Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 6
30 NÝJAR KVÖLDVÖKUR ráðalaus að svara fyrir sig, bæði þessu og öðru, sein hefir heyrzt í dag, hefði hann virt það þess. En að efast um að hann hafi orðið sáluhólpinn fyrir trúarvillu, gef eg hverjum eftir, sem vill hafa það svo. Honum er það ekki of gott.« Helga var staðin upp — henni var þungt. En hvað mér þótti vænt um hana, að hún þorði ein að taka svari hans — ein á móti öllum. Mig blóðlangaði til að rjúka að henni og kyssa hana fyrir svarið. «Eg meinti það nú engan veginn,« sagði prestur og mýkti málin, «hann var víst trúað- ur á sinn hátt og kom víst eins oft til kirkju og hægt var að lofa honum og Ijá honum hest; en honum þótti aldrei neitt varið í ræð- ur hjá mér, og sagði enda þær væri fullar með hugsunarvillur,« og prestur glotti við; «en það var víst margt gott við hann, karl- greyið, fyrir það.« »Við skulum nú sleppa þessu tali,» svar- aði Helga þurrum róm, »en það var eilt, sem eg ætlaði að spyrja yður að, hvað þér eigið fyrir fyrirhöfn yðar í dag?« «Rað er nú víst ekki mikið — líksöngs- eyririnn 6 álnir, það er eitthvað um þrjár krónur núna; eg var ekki beðinn um ræðu- stúfinn, svo eg get ekki heimtað neitt fyrir hann; eg gerði hana svona, af því að eg kann aldrei við að fleygja líki svona alveg þegjandi ofan í gröfina.» Helga tók blað lítið upp úr peningabuddu sinni og fjóra tveggja krónu peninga og fékk presti og sagði um leið: “Retta bað hann mig að fá y ðu r,« Prestur tók við hvorutveggja með þökkum, stakk peningunum í vasa sinn, en fletti sundur miðanum og leit á; á miðanum stóðu þessi orð með fastri, góðri gamaldagshendi: »Fyrir útför mína skal greiða prestinum 8 kr. í peningum, hvort sem hann heldur nokkra ræðu eða ekki. Jón Björnsson halti.« Svo stóð hann upp, þakkaði Helgu skilin með handabandi og settist niður aftur. Síðan fór Helga út úr stofunni. Eg fór út stuttu á eftir henni, og varð þess þá var að hún var að borga líkmönnum og grafarmönn- um, sem reyndar voru þeir sömu, og fylgdi þeirri greiðslu miði svipaður þeim, er til prests- ins kom. Pegar hún hafði lokið þessum önnum, fór eg að reyna til að ná tali af henni, en það ætlaði ekki að ganga svo greitt; það voru hinir og aðrir að tala við hana, og eg var orðinn henni svo ókunnugur, að eg gat ekki troðið mér fram fyrir aðra. Pó réð eg það af á endanum að kæra mig kollóttan, notaði tækifærið, þegar hún var ein, gekk til hennar og bað hana að lofa mér að tala við hana fáein orð einslega. Hún tók því vel; við gengum suður hlað- ið og þaðan inn í kirkjugarðinn. Eg afsak- aði áleitni mína og framhleypni, en þess þurfti eigi með; hún tók því öllu vel. Eg sagði henni þá í sem fæstum orðum, að eg væri á- kaflega forvitinn eftir að fá eitthvað meira að vita um Jón en eg hefði fengið enn að vita. Eg væri hræddur um eða rendi grun í það, að dómur manna um hann, álit á honum og umtai um hann væri á einhverjum misskilningi bygt — hann hlyti að hafa verið eitthvað öðru- vísi en orð hefði verið á gert. Kvaðst eg nú helzt leita til hennar með það að fá einhverjar skýringar á þessu. Hún svaraði litlu. Pað var eins og hún væri á tveim áttum með það, hvað hún ætti að gera. Hún leit upp, og horfði á mig svo fast, eins og hún ætlaði að horfa og sjá mig inn í instu fellingar hugarfars og anda, horfa inn í hinar dýpstu rætur hjartar.s; eg mátti taka á öllu, sem eg átti til, til að standast það og láta ekki undan. En hún sá ekki ann- að en hreinskilni og alvöru, Mér var líka full alvara; það var engin hversdagsforvitni, þetta; hún blíðkaðist og mýktist á svipinn og brosti lítið eitt við. »Eg þekki yður svo lítið, en af því litla, sem eg kyntist yður um árið fyrir sunnan, ræð eg að þér séuð enginn flysjungur, og séuð....«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.