Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 16
40 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. af þeim, og gamall, gráhærður Ameríkumaður hristi höfuðið yfir þessu, en fyrirlitningarsvip- urinn var auðsær í andliti frúnna, og þær þokuðu sér lengra frá þessu átvagli og vildu ekkert við manninn tala. Doktorinn gaf þessu engan gaum; hann át það sem hann lysti, eins og ekkert væri um að vera, og skundaði að því búnu upp á þil- jur, til þess að reynaað jafna geðsmuni sína undir berum himni. Veðrið var fagurt. Hið suðræna, heilnæma og þægilega sjóloft lék um þiljurnar. Haf og himin brosti við í fögru litaskrúði, sem í öðr- um kringumstæðum efalaust hefðu haft mikil áhrif á vísindamanninn. En fegurð og mildi náttúrunnar gaf hann að þessu sinni engan gaum. Hann mundi nú eftir, að áður en hann sofnaði um tnorguninn, hafði hann heyrt þungt kjökur eða sára eymda- stunu í næsta herbergi við sig. Og hann þótt- ist viss um að þetta hefði verið í herbergi konu sinnar. Hinn undarlegi og alvarlegi svip- ur skipherrans eftir að hann hafði minst á veikindi hennar, og óbeivin sem hann hafði ‘orðið var við að frúnnar í borðsalnutn höfðu á sér, alt þetta píndi hann, og honum fanst hann vera í sama ástandi, eins og hann væri glæpamaður. Var það eigi skylda hans að fara þegar ofan til konunnar, annast hanaog hjúkra henni sem læknir. Hann sem hafði lesið lækn- isfræði, jú, það fanst honum, og hann lagði af stað, að vísu í hægðum sínum, ofan í far- rýmið og stefndi til herbergisins við hliðina á sínu. Hann klappaði hægt á dyrnar, og hurðin var opnuð, en eigi meira en það, að ofurlítil rifa var inn í herbergið, og í þessa rifu kom fram kottuhöfuð með mislitan skýluklút. En undir skýlunni tindruðu augun dökk og kinn- arnar mjúklegar og fagurbrúnar. En augun voru jafnframt rauð af gráti og drættirnir um munn- inn báru vitni um bitra sorg. Retta var eldri Múlaítakonan; hún var mjög vel búin, í svörtum silkikjól með skrautlegt orklæði úr smágjörvu líni. En jafnskjótt og hún sá doktorinn og hafði áttað sig á því hver hann var, brá alvarlegum óttasvip fyrir í andliti hennar, og hún varð að styðja sig við, svo hún hnígi ekki niður. Hún bað hann svo með bendingum og sorgblöndnu augnaráði að fara, og hann gat eigi annað en gegnt svo ákveðinni frávísun; þegar hann hafði snúið við var hurðinni lokað og hann heyrði, að slá var hleypt fyrir hana að innan. Doktornum fanst nú hann hafa gert skyldu sína, og honum varð því hughægra. Auk þess hafði hann kotnist að raun um, að tengdamóð- ir hatis — ef þessi Múlattakona væri það — var alls eigi ógeðsleg, þótt hún bæri þennan brúna hörundslit. Hann var þó eigi kominn langt frá dyrun- um, sem svo vandlega' hafði verið lokað fyrir nefinu á honum, þegar þær aftur voru opnað- ar. Hann leit við, því hann hélt að frúnum hefði snúizt hugur, og vildu finna sig, en þá sá hann að aldraður, maður þrýstinn og hold- ugur kom út úr herberginu og jafnskjótt var dyrunum lokað aftur. Feiti karlinn gekk til hans, Iyfti hattinum og sagðist vera skipslæknir. «t*ér munuð vera herra Walter,« spurði hann því næst. Doktorinn hneigði sig samþykkjandi. «Hum« sagði læknirinn og aðgætti þennan eiginmann sjúklingsins með fremur kuldalegum svip. Reir urðu samferða upp á þiljur, og þar sagði æknirinn: «Hm,— frú Walter er ákaflega veik — mjög hættulega veik — eg get búizf við því versta.« Og hann rendi augunum út yfir hafið, eins og hann væri að horfa eftir blett- inum, þar sem líki ungu konunnar mundi verða hleypt niður. — »Hum, hún verður að hafa fullkomið næði, enginn má ónáða hana — — hún er búin að reyna alt og mikið, ojæja. Hún er saklaust barn, og hefði átt að bíða með að gifta sig,« og svo snuggaði í honum gremju- lega, og hann bætti við með þjósti: < Hin minsta óvarkárni getur gert út af við hana. Svo lyfti hann hattinum og gekk með spek-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.