Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 21
ÞÆTTIR 45 ferst^þar árlega fjöldi manna úr allri eymd og vesöld, svo að enginn veitir því eftirtekt. Þessi Kínverjagreni, ásamt hinum mörgu brennivínskjöllurum heyra til hinna myrkrari hliðar þessarar glæsilegu alheimsborgar, og verða þessir staðir jafnan með svörtustu^ blett- um á skildi hennar. * * * * * * * * * Það er kunnugt, að Kínverjar drekka ekki vín sér til tjóns, en reykja allra þjóða mest opíum, eins og Tyrkir og fleiri austurlanda- þjóðir. Englendingar fluttu þangað fyrst opí- um frá Indlandi, en þegar Kínverjar sáu, hve skaðlegt það var og banvænt þjóðinni, lög- tóku þeir aðflutningsbann á þvi í land sitt. En það varð mikill hnekkir opíumkaupmönnun- um ensku; fengu þeir þá ensku stjórnina til þess að segja Kínverjum stríð á hendur, og stóð það um 2 ár (1840—1842); unnu Eng- lendingar sigur og neyddu Kínverja til að kaupa opíum og aðrar enskar vörur eftir sem áður. Svona geta mannúðar- og mentunarþjóð- unum stundum orðið mislagðar hendur, þegar um fjármunalegar. hag er að ræða. Pættir úr landnámabók jaröarinnar. Aðrar nýlendur höfðu verið settar á stofn þar í grend, en þær fóru allarforgörðum að mestu, og gengu undir forustu Balbóa. En allerfitt varð honum þó að halda þar uppi yf'rráðum sínum. Landsbúar voru herskáir og illvígir, og gátu heldur ekki látið það alt í té, sem Spánverjar vildu af þeim hafa. Balbóa tók sig því upp með nokkuð af liði sínu og fór að leita að héraði einu, sem mjög var látið af- Fundu þeir þar Iand vel ræktað og blóm- 'ega bæi. Höll höfðingjans var 150 skrefa löng og 80 skrefa breið, og var var þar geymt firnin öll af brauðeplum og öðrum vistum. Urðu þeir forviða yfir þessari sjón. Einna mest undruðust . þeir líksalina í höll þessari. Héngu þar í mottum smyrlingar forfeðra höfð- ingjans, og voru þeir allir prýddir allskonar skarti og verndargripum, og bar það vitni um hverja helgi menn höfðu á leifum hinna fram- liðnu foringja. Spánverjar náðu hér í firnin öll af gullpjátri og höfðu með sér, en Ientu svo í rifrildr við skiftin. Sonur höfðingjans varð hissa á þessu, benti til vesturs, þar sem lág og skógi vaxin fjöll var að sjá í fjarska og kallaði uop: »En hvað þið skuluð vera að rífast út af öðru eins smáræði og þessum gullþynnum. Ef ykkur langar svo mikið í þær, þá veit eg af landi, sex sólir (dagleiðir) héðan, þar sem nóg er til af slíku. Þegar þið kom- ið upp á hálsana þarna, sjáið þið annað haf, sem er eins og þetta, og skip á sigliugu fram og aftur.« Auðvitað átti hann ekki við að gullið væri þar, því að það var miklu fjær, heldur átti hann við hafið kyrra, vestan við Ameríku. Retta þótti Spánverjum góðar fréttir og héldu nú að þeii væru rétt komnir í gulpara- dísina. En Balbóa þóttist of liðfár til þess að ráðast í slíka för, og sendi því til Haiti til Diegó Kólumbusar, sem þá var orðinn þar landsstjóri og bað hann um styrk til þessarar ferðar. Kólumbus sendi honum hjálp, þótt lít- il væri, en skipið fórst á leiðinni. Regar Bal- bóa fór að leiðast biðin, sendi hann síðasta riddara sinn til Spánar að biðja hjálpar, en sjálfur fór hann með 160 manna þar um næstu landshluta og fékk mikið gull saman, en lands- menn voru honum illvígir, svo að hann hélt heim aflur til Santa María. Fór nú aftur að bera á nauð og basli í nýlendunni, en þá kom skip og lið frá Kólumbusi, og fylgdi það með að Balbóa var gerður yfirhöfðingi fararinnar. Að líkindum hefir það verið að undirlagi Spán- arkonungs. Balbóa lagði af stað l.sept. 1513 með 190 Spánverja, og hafði með sér 600 innlenda burðarmenn, til þess að bera farang- ur þeirra yfir hálsana. Héldu þeir svo áfram um þrjár vikur, að ekkert varð til fyrirstöðu. En þá hittu þeir fyrir scr höfðingja einn vold-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.