Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 14
38 NÝJA RKVÖLDVÖKUR og liann bar brúðina tafarlaust ofan í skip- ið og fylgdi Múlattakonan honum eftir. Skipherrann og aðrir skipverjar fóru þegar að gera ráðstafanir til að létta akkerum, og dr. Walter stóð úrvinda og sinnulaus einn síns liðs út við öldustokkinn við skipstigann. Hann hrökk við um leið og einhver lagði höndina þungt á herðar honum. Hann leit upp og stóð þá Múlattinn við hlið honum og mælti með hæðnisglotti: «Eg óska yður til hamingju í hjónaband- inu og á ferðinni,« og um leið fékk hann hon- um bréftösku og mælti: »Hér hafið þið nokk- urn hluta af arfi hennar, en mikið af honurn ætla eg að ávaxta íyrst um sinn hér vestra.« Að svo mæltu snaraðist hann ofan í bátinn og bauð mönnum sínum að róa til lands. í þeim svifum kom káetuþjónn og bað doktorinn að koma niður með sér, svo hann gæti vísað honum á herbergi hans. Walter fylgdi honum eftir og var sem í leiðslu. Jafn- skjótt og hann kom inn í herbergið, lokaði hann að sér og fleygði sér í öllum fötunum upp í'rúmið. Hann féll fljótlega ífastan svefn, enda hafði hann þá vakað fullan sólarhring og var þreyttur og lamaður bæði á sál og líkania. Hann svaf vært fram undir miðjan dag, þá vaknaði hann ogfann hressandi sjóloftið streyma inn um hinn litla kringlótta káetuglugga, semstóð opinn, og hann fann til þeirrar hressingar, er svefninn hafði veitt honum. Alt í einu mundi hann eftir ósköpunum, sem yfir höfðu dunið nóttina fyrir. Hann opn- aði augun kvíðafullur og horfði í kringum sig. Rað fyrsta, sem honum kom til hugar, var, hvort hann mundi vera kominn inn í einhvern æfintýraheim, svo skrautlegt og íburðarmikið fanst honum alt vera í kringum sig. Herberg- ið var útbúið -með öllum upphugsanlegum þægindum og skarti, sem ætla mætti að stór höfðingi eða miljónamæringur mundi óska sér, og hann fór að hugsa um, hvað þessi skraut- legi og þægilegi aðbúnaður væri ólíkur þeim, er hann hafði haft viðað búa síðustu mánuðina. Þegar hann var að hugsa um þetta, var klappað hægt á hurðina og kurteis káetuþjónn spurði, hvort herra Walter kysi heldur að fá miðdegismatinn þangað inn, eða þá að hann vildi koma og borða í salnum. Doktorinn kvaðst mundi borða í salnum. Hann varð nú að fara á fætur, þótt hann hefði heldur kosið að liggja lengur í þessari mjúku sæng, því að honum fanst hann aldrei hafa hvílst jafnvel, síðan hann var barn. Hann reif sig þó á fætur og rendi ennaug- unum einu sinni yfir hið skrautlega herbergi. Rá kom hann auga á nokkuð, sem dró að sér alla athygli hans. Gamla, slitna ferðataskan hans var þar í einu horninu, en í henni hafði hann geymt alt jurtasafn sitt. Hann hafði búizt við að þessi taska hefði orðið eftir, þegar hann var tekinn til fanga, og var það honum óbæt- anlegur skaði, ef hann hefði mist hana. Task- an stóð þarna ofan á tveim ferðaskrínum, sem hann gaf engan gaum. F*að gladdi hann ekki lítið að sjá jurtatöskuna. Rar var Iíka jurta- geymirinn,_sem hann var vanur að bera á bakinu daglega, dagbókin hans og í einu knippi jurtirnar, sem hann var hrifinn frá daginn áð- ur, þegar hann var tekinn fastur. Rað var hon- um mikil gleði að sjá þessar dýrmætu eignir sínar, og hann tautaði fyrir munni sér: »Ó, Melazzó.» Svo fór hann að athuga ferðaskrínurnar og þekti þegar, að þetta voru sömu skrínurnar og hann hafði beðið prússneska konsúlinn í X að geyma. Rótti honum vænt um að fá fþær, þar sem hann var kominn á ferð í skrautlegu skipi, því í ferðakistum sínum hafði hann geymt beztu föt sín og hálslín, sem hann hafði ekki viljað flytja með sér inn í skógaauðnirnar. Að síðustu kom hann auga á bréfaveskið, sem Melazzó hafði fengið honum að skilnaði. Hann hafði fleygt því frá sér á stól í her- berginu. og það var mikil heppni fýrir hann, að hann hafði eigi tapað því á leiðinni til her- bergis síns, jafnmikið og hann var utan við sig, þegar hann fór niður. Nú opnaði hann veskið og sá að það var fult af bankaseðlum,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.