Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Blaðsíða 15
FORLAGAGLETNI 39 sem höfðu mikið verðmæti. Rar var og miði frá Melazzó, og hafði hann ritað á hann, að það væru veztir af eignum konu hans. Nú fyrst rifjaðist upp fyrir honum að jafn- hliða þessari auðlegð og þægindum væri hann lögformlega og óafturkallanlega giftur. «Þessi Melazzó, þessi slægi og ofbeldisfulli þorpari,« tautaði hann. Rað hafði eigi verið nein nauðungarlýgi, þegar doktor Walter hafði fullvissað Múlattann um hina miklu óbeit sína á því að gifta sig. f’essi ungi náttúrufræðingur hafði fram að þessu aldrei hugsað um önnur blóm, en þau, sem þrifizt gátu og hann hlynti að í jurtagarði. Konan fanst honum eigi annað en misheppn- uð tilraun sköpunarverksins. Eftir hans skoðun hefði verið langtum gagnlegra að mennirnir, sem ein;sngis hefðu átt að vera karlar, hefðu myndazt og vaxið upp eins og eplin á trján- um, helzt með bók milli handanna. Hann gat eigi skilið að vitrir menn, sem gátu varið lífi sínu til þess að fást við ýms mikilsverð við- fangsefni, skyldu vilja eyðileggja líf sitt með Umhyggju fyrir jafn tilgangslausri veru og kven- maðurinn væri, sem aldrei hugsaði um annað en smámuni og hégóma. Og nú höfðu for- lögin lagt á hanu þennan kross. Hann var bundinn böndum hjúskaparins, hann, sem aldrei hafði haft, og aldrei mundi hafa aðra unn- ustu en grasafræðina. Og hver var svo þessi kona, sem hann möti vilja sínum var bundinn við? Og nú fyrst fór hann að hugsa um, hvernig hún mundi líta út, og að hann enn hefði eigi séð hana. Stóra sjalið hafði hulið andlit hennar, þegar þau voru gefin satnan, og frá því hafði hann eigi átt kost á að sjá hana. Melazzó hafði sagt, að hún væri í ætt við sig, og þá var ekkert lík- Kgra, en að hún væri dóttir hinnar fyrirlitlegu Múlattakonu, sem stöðugt fylgdi hetini, og ef W vill var hún enn ófn'ðari og svartari en móðir hennar, sem eigi var ófríð. I huga sínum útmálaði hann stöðugt kring- umstæður sínar meir og meir hræðilegar og niðurlægjandi, svo hann dirfist naumast að yf- irgefa herbergi sitt, fanst hann mega skamm- ast sín fyrir öllum mönnum. En svo fór hann að hugsa sig um, að hlægilegt væri þó að loka sig inni og forðast alla menn, því það gæti hann þó aldrei til lengdar, og naumast meðan á sjóferðinni stæði. Hann þvoði sér því í skyndi og lagaði föt sín og hár, og bjóst til að ganga til mið- dagsverðar. Þegar hann opnaði hurðina, bjóst hann við að sjá Múlattakoiuma standa þar á hleri og vilja ná tali af sér fyrir konuna. En þessi getgáta hans rættist eigi, og hann sá ekkert til þeirrar dökkleitu, hvorki í gangin- um né í borðsalnum. Salurinn var mjög skrautlegur og nokkrir herramenn og frúr sátu þar til borðs. Fólk þetta var alt af hvíta kynþættinum. Allir horfðu á Fjóðverjann alvörugefnir, þegar hann kom inn, og hann fór að hugsa um, hvort þetta fólk mundi vita um ógæfu þá, sem hann hafði ratað í. Skipherrann skýrði honum frá því í fám orðum, að farþegjarnir hefðu hluttekning í þeirri mæðu hans, að frú Walter væri hættu- lega veik. Og nokkrar eldri konur fóru að spyrja þennan unga, fríða, en fölleita eigin- mann, hvernig konunni hans liði, hvort hún væri ekkert betri. í feimni sinni og vandræðum stamaði dokt- or Walter fram nokkrum illa viðeigandi afsök- unarorðum, sem báru vitni uin undrun hans, og að hann visst ekkert í sitt höfuð uin veik- indi konunnar. I því bili var honum borinn maturinn og hann fór umsvifalaust að borða, til þess að komast undan hinum forvitnislegu spurningum frúnna, því hanu vissi eigi hverju hann skyldi svara þeim, og hann át í gríð og ergi; hann hafði eigi lengi bragðað mat, og áreynsl- an daginn fyrir og ferðalagið um nóttira hafði gert hann innantóman og aukið matarlyst hans. En þegar borðgestirnir sáu, hvernig þessi tilfinningarlausi ektamaki ruddi hvern diskinn á fætur öðrum, þótt honum hlyti að vera kunnugt um, að kona hans væri dauðvona í rúminu, gekk þetta siðleysi og kæruleysi fram-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.