Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Side 18

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Side 18
42 NÝJAR KVÖLDVÖKUR urstöðu, að hér býr eða heldur til mesti fjöldi manna úr Austurálfu; sjaldan reyndar nema tíma og tíma í einu; þeir koma og fara, en fjöldinn er svo mikill að enskra manna gætir miklu minna en hinna austurlenzku í þessari eirðarlausu hringiðu. Kalkhúss-stífla (Limehouse Damm) kallast einn hinn ógeðslegasti hluti þessarar borgar- deildar. Rar eru það einkum Kínverjar, sem halda þar til lengri eða skemmri tíma, enda er þar að mörgu leyti einna líkast eins og gerist heima hjá þeim; og þar er það, sem vér verð- um að leita að veitingagrenjum þeim, er þeir leita sér vistar í; þar er það, sem maðurinn virðist standa lægst eða virðist komast lægst í þrældómsástandi girnda sinna og ástríðna, enda þótt honum finnist hann vera þar næst himna- ríkissælu hér á jörðu. Einn af embættismönnum þeim, er standa fyrir enska kristniboðinu í Kína og á meðal Kínverja, og talar vel tungu þeirra, fór fyrir nokkrum. árum einskonar ransóknarferð um þessar stöðvar með öðrum Englendingi til. Segist honum svo frá ferð sinni: Það var þegar talsvert farið að rökkva í borginni, og mesta hávaðanum og skarkalan- um var dálítið farið að slota, þegar við vor- um komnir ofan á Kalkhússtífluna; gengum við þar inn í hús eitt lítið, Ijótt og fornfálegt. Yíir dyrunum stóð letrað með kínversku letri: ♦ Réttvísi og eindrægni;« við förum svo inn í þetta musteri dygðarinnar og komum inn í herbergi eitt injög óhreint. Rar snerum við inn í herbergi eitt til vinstri handar, er stóð opið. Lagði þaðan viðbjóðslega lykt af opíums- svælu. Kompa þessi var svo lág, að við gát- um tæpast staðið þar uppréttir; auk þess var hún svo lítil, að það var lítt skiljaniegt að hún gæti orðið notuð til alls þess, sem hún var ætluð, því að hún var bæði sölubúð, reykingar- salurogeldhús. Hillur voru á veggjuuum allt í kring, og mjótl búðarborð var eftir miðju góifi; allskonar vörur lágu bæði í hillunumog á borðinu, bæði ullarábreiður og sjómanna- skyrtur, hveitikökur, þvottasápa og mislitar myndabækur, og alt þar á milli, sem nöfnum tjáir að nefna, í hringum og haugum, en í horninu á hægri hönd var dálítill ofn, og stóðu í kringum hann fáeinir svartir pottar og pönn- ur, og mátti af því sjá, að ofninn var notað- ur til matgerðar. Nokkrar hálftunnur og tveir stólar stóðu beggja vegna við borðið. Vinstra megin stóð borð undir glugganum, en á milli borðsins og veggjarins var troðið niður lágu rúmstæði með dýnu í, og flatmöguðu tveir menn í þessu bæli. Annar þeirra var klæddur að Norðurálfumanna sið, þykkum brókum og hásetatreyju af ull; loðna húfu hafði hann á höfði; hinn var klæddur að kínverskum sið. Báðir reyktu ópíum. Pegar við komum inn, var maðurinn í há- setafötunum að verka upp pípu sína og búa sig undir að fara að reykja, en hinn ,var þeg- ar kominn í það deyfðarástand, sem menn ætla sér að ná í með þessum reykingum. Hann lá þar lémagna, og varð þess varla vart að hann andaði, og var auðséð að hinar unaðarsælustu draummyndir bar fyrir huga hans. Við heilsuðum Kínverjanum, og tók hann kveðju okkar vingjarnlega og brosti við ; svo tyltum við okkur niður á stólana og athuguð- um vandlega þenna gula mann í sjómannaföt- unum, og það, sem hann hafðist að. * Það er talsvert langsamur og leiðinlegur undirbúningurinn undir það að reykja þetta skaðvæna eitur.' Dálítill lampi stóð á dýnunni á milli beggja mannanna, og var yfir honum svo lítill glerhjálmur með gati upp úr, Mað- urin tók sér alt liægt; hann dýfði mjóum stál- prjón ofan í dáhtla flösku, með hálfþykkum opíumharpeis í; hékk þá dálítið af leðju þess- ari við prjóninn; síðan hélt hann prjóninum yfir lampanum, þangað til leðjan dróst saman í ofurlítið ber, sem mátti hnoða á milii fing- rana. Ressu hélt hann áfram, • dýfði prjóninum niður í flöskuna, yljaði hann svo yfir lampan- um, þangað til hann var búinn að fá nógu stóraii köggul á prjóninn að hann nægði. Síð- an tók hann mola þenna, og stakk honum of- an í ofboðslítið pípuhöfuð, og lagaði hann

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.