Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Side 19

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Side 19
HEIMKYNNI KÍNVERJA í LUNDÚNUM 43 svo til, að gat var { miðjan molann. Pá loks var hann búinn að búa alt undir það að kveikja í pípunni. Hann hélt svo pípuhausnum yfir ljósinu og saug að sér, þangað ti! eldur var kominn í harpeisinn, og hallaði sér síðan aft- ur á bak í rúmbælið, Hann reykti hægt, dró hægt og seint að sér reykinn, hélt honum uppi í sér nokkra stund, hleypti honum svo fram um nefið og lét síðan aftur augun til þess að bíða áhrifanna. Regar hann hafði reykt fáeina i'eyki, var búið úr pípunni. Aður en opíumsvíman var svo búin að heltaka manninn, að hann yrði mállaus og meðvitundarlaus, reyndi eg að ná samtali við hann; þar á dýnunni hjá honum lá einkenni- legur hlutur, líkastur í lögun og olíukönnur bær, er hafðar eru til þess að bera á vélar, með langri túðu. Eg fór að spyrja hann að, hvað þetta væri. «Tóbakspípa,« svaraði hann; eg athugaði hana vandlega og sagði svo við hann: «Hvort þykir yður betra, opium eða tó- bak?« «Og þetta,* sagði hann og klappaði hend- inni á opiumpípuna og hló við eins og krakki, sem veit hann á ekki að gera það, sem hann er að gera. Hvað lengi hafið þér reykt opíum?» »Sjö ár.« «Verðið þér ekki veikur af því?* Þessi spurning virtist ganga nokkuð nærri honum; hann talaði ákaft fyrir því, að hann hefði í fyrstunni reyndar haft andstygð á því, og enda orðið ilt af því, — en nú vilji hann heldur verða veikur og enda deyja, en missa af því. Eg spurði hann svo, hvernig hefði staðið á því, að hann vandist á þetta, og hvar. Hann svaraði: »Vinir mínir kendu mér það hér í Lundúnum.« Hann hafði þá ekki lært það á Austur- löndum, þar sem þessi skaðvænlegi ávani er svo algengur; heldur hafði hann lært það inni 1 miðri menningunni hjá okkur hérna; hér var vesling Kínverjunum ekki annað úrkostar, en leita sér skjóls og hælis í þessum skaðræðis- króm, þar sem þeir tortýndust bæði til sálar og líkama. «En hvað segja nú ættingjar yðar um þetta, þegar þér komið heim?« sagði eg svo. «Þeim þykir það leiðinlegt,» svaraði hann. »Reynið þér nokkurntíma að kenna öðrum að reykja opíum?« »Nei,« svaraði hann, »menn horast niður af því;« og svo smeygði hann erminni upp handlegginn á sér og sýndi okkur hann : hann var magur og skininn ; manngarmurinn vissi því vel, hvað skaðvænt þetta eitur var, en þó var allur hugur hans á því að halda áfram þessari nautn, þangað til fullkomin opíumvíma er kom- in yfir mann, honum finst allur líkamsþungi vera horfinn og hann líða í loftinu léttur sem skýhnoðri, en unaðslegar drauminyndir svífa fyrir huga hans og augum. En eftir því sem lengra líður og vaninn verður ríkari, þurfa menn meira af eitri þessu, til þess að komast í vímu þessa, og var auðséð að maður þessi þurfti þá orðið allstóran skamt, til þess að ná fullri værð. Við yfirgáfum nú aumingja þenna, oggeng- um inn í innri herbergi hússins og upp á loftið og héldum þar áfram athugunum okkar. Hver smuga í þessum húsræfli var vandlega notuð. Meira að segja voru bæli til að liggja í sumstaðar í göngunum innanum húsið. í kompunum voru bælin hvert yfir öðru eins og í káetu í skipi, svo að 10—16 manns gátu sof- ið eða reykt opíum í herbergi, sem var 6 álna langt og 4 álna breitt. Alls munu hafa verið um 50 bæli í kofa þessum, en ekki sáum við heima nema eitthvað þriðjung íbúenda. Kom- umst við skjótt að því, af hverju það kom. Við höfðum við og við heyrt óhljóð i fjarska, líkt og gerist þar, sem hættuspil eru spiluð. Við leituðum herbergið uppi og fór- um þar inn. Þeir höfðu þar dregið tvö rúm- stæði fram á gólfið, sett þau samhliða og breitt dúk yfir. Svo höfðu þeir spilaborðið. í kring- um borðið voru nokkrir Kínverjar; húktu sum- ir á fótum sínum, en sumir stóðu. Alls voru þeir tuttugu og þrír, og svo voru þeir 9oknir 6*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.