Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 8
6 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. sjór hafði líka verið ókyr og bylt »Heru« dug- lega a báða enda. »Verið þér sælir,« sagði Hugh við Armen- ann, þegar hann fór. »Verið þér sælir,« svaraði hinn, »og mér þykir mjög vænt um að hafa kynst yður.« 4. Armenar. Hugh varð glaður við að frétta að austur- ríska skipið væri enn ekki farið; annars hefði hann orðið að bíða í marga daga í Aþenu- borg og fara svo á einhverju skipi ítalska fé- lagsins; á hverju miðvikudagskvöldi kl. 7 fór austurríska skipið beina leið frá Piræus til Miklagarðs. Hann hafði því eina stund til þess að koma sér fyrir; hann fékk menn til þess að flytja fram kistur sínar og veiðibyssur og kom svo sjálfur á eftir glaður í bragði yfir því að komast úr öllum óþrifnaðinum á gríska skip- inu og yfir í hítt. Þegar hann var búinn að þvo sér og skifta fötum, kom hann upp úr káetu sinni til þess að sjá hin fornfrægu fjöll og sjá þegar skipið færi af stað, og varð þá steinhissa á því að reka óðara augun í Armenann. Par stóð Saoul Kaljyattian fursti í gljáleður-stígvélum og yfir- höfn eftir enskri tísku — og ekki einn, heldur með fleira fólki. Hann var að tala við stúlku, sem Hugh varð svo mikið um að sjá, að hann alveg steingley mdi furstanum og þeim ými- gusti, sem hann hafði á honum. Hún var raunar með andlitsslæðu, en þeg- ar gullnir geislar kvöldsólarinnar skinu á hana, gat hann samt greint frítt andlit og stór svört augun. Hún var beinvaxin og aðskorin, svört, skósíð silkikápan, sem fóðruð var loðskinni, huldi ekki yndisleik sköpulagsins. En auk þessa var eitthvað sérstakt töfrandi, sem einkendi alt viðmót hennar og hertók huga Englendingsins, sem var móttækilegur fyrir alt fagurt. Honum fanst, að á þessum fornhelgu stöðum, í nánd við Olympos, væri einhver dísin þaðan kom- in niður til mannanna. Hann dauðlangaði til að athuga hana nánar, en bannsett slæðan á svartri loðhúfunni varnaði honum þess. Smá- atvik truflaði þessar háfleygu hugsanir hans. Furstinn snerist á hæli og kinkaði vinsamlega kolii til hans; það var auðséð að þessi skarp- skygni maður hafði tekið eftir því, að Hugh horfði aðdáunaraugum á stúlkuna; en hvernig gat þessi maður, sem áður var svo kurteis, dirfzt að heilsa svo óskammfeilnislega og kunn- uglega? Hugh tók ekki kveðjunni, blóðið hljóp fram í kinnar honum; hann fór út að borð- stokk og fór að athuga burtför skipsins — en var ekki eins rótt í skapi og vanalega. Um leið og skipið fór af stað, var hringt til matar, og Hugh fór niður í borðsalinn í von um að sjá stúlkuna aftur við borðið. Pjónn- inn skipaði í sæti, og Hugh lenti á milli tveggja karlmanna; stúlkuna sá hann hvergi. Loksins þegar verið var að enda við súpuna, kom hún, og fylgdu henni tveir menn, Saoul fursti og aldraður maður með langt, hvftt skegg. Pau settust öll við hitt borðið, á móti Hugh og til hliðar. Hann gleymdi nú öllu, sem í kringum hann var og hafði ekki hugann á öðru en ókunnu stúlkunni; hún var fagurlega búin, klædd eftir ensku sniði, í mjög flegnum kjól úr Ijómandi silki, svo að fagur hálsinn sást greinilega; kolsvart hárið krýndi breitt ennið eins og kóróna, augun voru stór og róieg; honum fanst hörundsliturinn einkennilegur, hann var ekki róslitaður og ekki heldur fölur, hör- undið virtist honum eins og gagnsætt og lit- urinn eins og á smágerfasta marmara. »Viljið þér ekki ólífur?« sagði rödd við hliðina á honum, »þær eru alveg nýjar.* Hugh leit við stúrinn á svip og sá, að þjónninn var að rétta honum fat; hann hafði ekki fylgst með í borðhaldinu. En hver dirfð- ist að bjóða honum nýjar ólifur? Hann sá að boðið kom frá hægri sessunaut hans, sem beið þess að fatið með hinum gómsæta rétti kæm- ist áleiðis. Hugh tók engar ólífur, þó að hon- um þættu þær mjög góðar; fatið hélt því leiðar sinnar til sessunautsins, sem tók drjúg- um af því. Hann var hörundsdökkur, ófríður, smávaxinn maður, með gilt, bogið nef; en

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.