Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 26
24 NYJAR KVÖLDVÖKUR. hans við kirkjutrúna, eða trúarbrögðin, sem hann kallar, og svo að síðustu niðurlagsorð. Hér er hvorki tími né rúm til þess að fara að rekja hugsunarþráð hans og rök, og ekki heldur það, hvernig hann hugsar sér kerfi til- veruunar. Rað þyrfti að skrifa upp svo mikið af bókinni til þess. Eigi er þá heldur hægt að taka til meðferðar eða rökræða ástæður hans eða niðnrstöður þær, sem hann kemst að, því þær eru saga hugsananna; og svo þyrfti þá að skýra frá einstökum köflum, ef ælti að rök- ræða þá, og yrði þá hætt við að þeir kaflar yrðu slitnir út úr sambandi heildarinnar. Eg Ieiði því hvorttveggja hjá mér. En til þess vildi eg ráða hverjum hugsandi manni að lesa bók- ina, lesa hana með athygli, og það oftar en einu sinni; hngsunin er víða þung og erfið viðfangs; það þarf oft mikið til að átta sig vel á henni fyrst. En við aó lesa hana tvisvar — þrisvar, greiðist altsaman og verður Ijóst. Lífsskoðunin er fögur og göfugmannleg, og hið háleita takmark mannsins er þar margítrek- að. Mér brá við að hitta þar hugmyndir, sem höf. mér vitanlega gat ekki vitað neitt um að eru nú ríkjandi meðal eins flokks trúspekinga í heiminum — það er skoðun hans á tilveru og ástandi manna eftir dauðann. Pað mál útlistar hann í 47.-49, gr. F*að kemur þar fram hjá honum sú skoðun, að menn geti »setið eftir« i mannlegu eðli, ef menn hafa ekki haft færi eða vilja á því að þroskast svo og fulikomn- ast í lífinu, sem til var hægt að ætlast; að menn þrái þá til jarðlífsins aftur, þegar ekkert í jarðlífinu hafi getað lyft andanum hærra en til hversdagslegra síngirnismála; þá fylgi sú þrá manninum yfir um og geri annað líf hon- um að kvalastað um stundarsakir. Ressum sál- um þykir honum líklegt að verði fyrirsett að holdgast aftur, lifa upp aftur og læra betur, og það hvað eftir annað þangað til þeir hafa lært að fullkomnast á jörðu. Petta verða þær að lifa sjálfum sér til fullkomnunar. Annað er það, að göfugar og fullkomnar verur geti einnig eftir ráðstöfun hinnar eilífu speki klæðst aftur mannlegu holdi og fæðst að nýju til þess að koma fram með mannkyninu sem fræðarar þesS og fullkomnarar, til þess að birta því ómetan- leg sannindi eg lyfta því á hærra stig. Hug- mynd þessi er ný fyrir oss, og mun því mörg- um finnast athugaverð. En hvað sem því líð- ur, þá er hún þess verð að hún sé tekin til greina eftir framsetningu hans og rökleiðslu. Pannig er allmargt í bókinni alveg nýtt fyrir oss, — og þess munu iíklega fá dæmi, þótt víða um heim se leitað, að bóndamaður ofan úr sveit reki þannig hugsanarökleiðslur, eins og hann hefur gert. Og það gerir hann með allri auðmýkt vísindamannsins og guðsbarnsins í einu — mannsins, *sem hefur móti vilja sín- um liðið skipbrot á barnstrú sinni, verið næst- um sokkinn í hyldýpi vantrúar, bjargazt þó með guðs hjálp að landi — ekki samt að skoðunar- landi, heldur að hugsjónarlandi. Par finnur hann loksins hvíld — með guðs hjálp. Um þétta er saga mín. Guði tilheyrir dýrðin, en mér ber að fyrirverða mig,« — svo endar hann bók sína. Eg er hræddur um fáir kanpi og lesi bók- ina — og er illa farið. Pað ættu að lesahana sem flestir, sem kunna að lesa og nenna að hugsa. Peir geta grætt mikið á henni. Pað er í henni mikill andlegur auður, göfgandi og Iyftandi fyrir hvern mann á þessum efnishyggju- tímum. /• / Hefnd vinnukonunnar. F r ú i n við vinnukonuna, sem er að hafa vistaskifti: »Og svo verð eg nú að fá að sjá í koffortin yðar, því þar sem þér höfðuð lykl- ana að öllum geymslubúrum og hirzlum í hús- inu, get eg búist við að þér hafið tekið hitt og þetta með yður.« »Vinnukonan: »0-nei, frú, þess þurfið þér ekki. Pað einasta sem eg tek með mér héðan er ást mannsins yðar.«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.