Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 17
VINNUMAÐURINN. 15 ;v^'nfn iovv ■ 4. verið í næstu sveit við Skarðsárdal, og orð- rómurinn af henni fyrir löngu heyrst þangað. Nú voru þeir búnir að eignast hana með húð og hári. Fljótlega eftir það að bréfið kom að vest- an, boðaði hreppsstjóri til aukahreppsfundar, til að knýja á menn að taka þau, fyrst og fremst um lítinn tíma, þar til hreppaskil yrðu haldin, ef þau skyldu koma nokkru fyr, sem v'ð mátti búast eftir bréfinu. Rar næst leitaði hann eftir hvert enginn vildi Ijá þeim húsnæði 'iæsta fardagaár, og var það eins og höggva í stein. — Öllum ægði það að taka þau hennar vegna, I ví allir þektu hana, eða þóttust þekkja hana, töldu hana sem landplágu, drepsótt sem nú færi að geisa yfir. Nú voru ótal þjófasögur Urn hana á lofti, sem ekki höfðu þó áður út- borizt. Síðast var það ákveðið, að salta þetta mál t'i hreppaskila, en Rórður hreppsstjóri, lofaði taka á móti henni með öðru barninu, en bóndi út í Skógahverfi varð til þess, að taka Einar með hinu barninu. Báðir tóku það skýrt fram, að þeir gætu ekki haft þau, nema það Seiu þau kynnu að þurfa að dvelja f hreppn- um fyrir hreppaskilin. Vorið kom, þegar loksins að það kom. Eetri bati var ekki hugsanlegur. Þíðublær á nóttum og sólbráð um daga skiftust á um að eyða snjónum, og lífga skepnurnar og vekja JUrtirnar af sínum Ianga og draumlausa vetrar- Svefni. Alt bifaðist, hrærðist til nýs lífs, nýrra starfa, framhalda því ákvarðaða. Gróðurinn öyrjaði fljótlega að sýna komu sína. Fyrst efst ® holtinu, svo niður eftir því. Fönnin í laut- >nni lét óðum undan siga. Flóttastigin mynd- uðu svartan hring umhverfis hana sem skjald- horg, sem rofnaði 0g dró sig saman og neð- ar> fyrir lífsmagninu að ofan, þar til fönnin hvarf og svarti hringurinn líka, en eftir varð *<r*nglóttur blettur, svartur, sem innan skams 'osaði sig við merki dauðans því nýgræðings- a**garnir fluttu þangað, og seinast dró lautin til sín mesta auðmagnið hins nýja gróðrarríkis í grendinni. Fyr en menn bjuggust við, höfðu hin áður- nefndu hjón verið drifin á «klökum« austur á sveit sína, með börn sín og hinn litla farang- ur. Var það auðséð, að þeir vestra höfðu orð- ið fegnir að losast við þau. Betur að allir gerðu það eins viljalega, að láta hvern hafa sitt. Litlu eftir þetta, var það einn dag að tveir menn riðu heim að Grund. Voru það hrepps stjórarnir, sem stundum voru nefndir eða það voru, Pórður hreppsstjóri og Magnús með honum. Var þeim fylgt til baðstofu og boðið til sætis í húsi hjónanna. Erindi þeirra var að fala húsmensku fyrir Einar og skuldalið hans. Rórður hóf mál sitl fyrst, fór mörgum orðum um þörf þá sem á því væri, að koma þeim fyrir, það væri bæði Iagaskylda og kristileg skylda að taka þau, þeirra skylda sem hefðu nóg húsrúm, gætu mist grasnyt ef á lægi eða einkum þeirra sem gætu rnist mjólk handa þeim sér að meinalitlu, og hér fyndist sér alt þetta myndi vera fáan- legt, ef vilji væri til. Borgun gæti fengist fyrir þessi smá hlunnindi, með því móti að Iáta Ein- ar vinna sér, þegar hann gæti það. Búin voru þau fósturforeldrar mínir að tala saman um þetta áður, og afráða með sér að neita algerlega, ef leitað yrði á þau með hús- næðið, því orðrómur sá er fylgdi þeim hjón- um, skelkaði þau sem aðra, og enginn vildi eiga samvistir með þeim, þó skémur væri en heilt ár. Fóstri minn neitaði alveg að taka þetta að sér. Taldi sig ekki færan um að veita þeim þetta nauðsynlega. Sagðist vinna upp jörð sína, og hús væru ekki aflögu, líka væri hann búinn að heyra sem aðrir, hve alment væri talað um þau, og væri óvanur við að geyma sitt fyrir þjófum. Rórður varð skjótt sem sót á lit fyrir reiði. Hótaði að láta dæma húsmenskuna inn á hann, og jós úr sér nokkrum illyrðum. Fóstra mín gegndi þá og sagði, að jafnframt

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.