Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Blaðsíða 22
20 NYJAR KVÖLDVÖKUR. nýráðinn, þegar það gerðist sem nú ætla eg að segja. Eg var ráðinn stýrimaður á skonnortu, sem fór strandferðir milli Rotterdam, London og Leith. Skipstjórinn var raunar duglegur maður en tók sér fulloft »neðan í því,« — Mr. Simson, þér verðið að hjálpa yður sjálfir, hér ér koní- ak og sykur — og þegar svo bar undir tók eg við stjórninni. Skipstjóri lá þá í rúminu og var var veikur að sagt yar, og fólkið á skipinu lést trúa því, þar tií hann klæddi sig aftur. Vegna þess að skipið fór strandferðir, og var fljótara og reglulegra í ferðum en mörg önnur fengum við stöku sinnum farþegja; ann- aðhvort þá, sem skipstjóri þekti sjálfur eða þá sem hann var beðinn fyrir. Til þess að betur færi um þá, var káetunni skift í tvent méð skil- rúmi, því að hún var nógu breið áður. Með því móti fengum við tvær káetur, aðra fyrir farþegja og aðra fyrir okkur; og var sú, sem farþegar notuðu nefnd »salurinn«. Nokkrir af hásetunum nefndu hana líka »Örkina hans Nóa,« vegna þess að matsveinninn, sem hafði lært málaraiðn, þegar hann var drengur, hafði málað hana þvera og endilanga undir þilfarinu með öllum hugsanlegum dýramyndum, bæði lands og lagar skepnum. Bæði skipstjóri og skip voru frá Lowestoft og gerðum við stundum svolítinn útúrdúr þar inn og spjölluðum við gamla félaga. Á haustin þegar ljótt var útlit og engir farþegjar, gerð- um við oft þessar ferðir þar inn. Þannig var það einn seinnipart dags f október, rétt eftir að þokan hafði lagt sig eins og múr á milli okkar og landsins, að við fórum þessa gömlu leið. Með grunnlóðið í hendinni og lúðurinn við munninn fundum við leiðina inn að haf- skipabryggjunni og bundum langfestar utarlega eftir að hafa búið alt undir brottför, þégar þok- unni létti af. (Framh.) Menningarþættir. 2. Ahrif náttúruþekkingarinnar. Orsökin til nærfelt allra þeirra stóibreytinga, sem orðið hafa á vinnubrögðum manna á síð- ustu tímum, liggur nær einvörðungu í því, að menn hafa snúið sér nær náttúrunni en áður var. Hvar sem einhverjar verulegar framfarir hafa á orðið í þeirri grein, eiga þær kyn sitt að rekja til aukinnar náttúruþekkingar. Og þar sem náttúran og vinnan hafa tekið höndum saman, hefur myndazt ný starfsemisgrein, sem kölluð er iðnfræði (Teknik); takmark hennar er það að efla bæði iðnað og vísindi jöfnum höndum eftir föngum, hleypa nýju lffi í hvort- tveggja og hvetja bæði til að herða sig að ná nýjum framfarabrautum. Iðnfrœði myndaðist fyrst á 17. öld, og á rót sína að rekja til hinna miklu framfara nátt- úruvísindanna, sem áttu upphaf sitt að þakka öðrum eins mönnum eins og Galilei, Koper- nikusi, Newton, Huyghens og eftirmönnum þeirra. Á síðara helmingi 18. aldar fanst svo sú vélin upp 1769, sem mestu byltingu hefur gert í öllum iðnaði í veröldinni, gufuvélin, enda þótt hún gæti ekki notið sfn' að fullu í Norðurálfunni fyr en menn voru farnir að jafna sig aftur eftir Napóleonsstyrjaldirnar; þó var farið að nota hana í þarfir samgangnanna um 1830 á járnbrautum og gufuskipum; eftir 1880 hefur gufuvélin fengið hættulegan keppinaut þar sem rafurmagnið er. Afleiðing þessarar stórkostlegu byltingar hefur orðið sú að hin dauðu öfl, sem felast í skauti náttúrunnar, hafa verið knúð til að vakna og þjóna mönnunum. Menn þurfa nú ekki leng- að sætta sig eingöngu við að nota sína krafta eina og vinnudýra sinna, heldur hafa þeir nú orðið ráð á þvi að nota sér öfl þau er sofið hafa í vatninu, gufunni og rafmagninu, og er vant að mæla þá krafta í hestöflum. Árið 1865 var vinnuaflið í helztu menningarríkjunum met- ið 12 miljónir hestafla, 1878 22 milj., og árið 1900 60 miljónir hestafla. Hvert hestafl svarar

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.