Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 13
KENNIMAÐUR 7 göngu fyrir þá sök, að hann reynir helzt alltaf að fleyta sér, þar sem einhver hagn- aðarvon er. Menn eins og hann þora al- drei að sýna hreinán lit af ótta við óþægilegar afleiðingar. Formaðurinn var nú orðinn svo æstur, að hann varð að þagna sem snöggvast til þess að dreypa á vatni og ná andanum. Svo hélt hann áfram vitund rólegri. — Ungmennafélagið hefir margsinnis sætt þyngstu áfellisdómum af hendi séra Bjarna, og það algerlega ómaklegum dómJ um. Við getum ekki svarað honum betur en með því einu, að segja skilið við kirkju þá, sem hann er fulltrúi fyrir. Það er aðeins þröngsýni að halda því fram, að þetta þurfi að verða til þess að kljúfa félagið. Menn þurfa aðains að líta á málið frá skynsamlegu sjónarmiði. Menn þurfa að hafa kjark til þess að þora að horfast í augu við nátttröllin. — Ég trúi því fremur, að félaginu vaxi ásmeg- in við að hafa óskipta forystu í þessu máli. — En nú er það algerlega útilokað, að félagið standi óskipt um þetta mál, sagði Guttormur; — sem betur fer, vil ég leyfa mér að segja, því að það- er hið mesta frumhlaup að blanda ungmennafélaginu inn í þetta. Gangið þið úr þjóðkirkjunni, sem ekki getið unað þar lengur, en án þess að neyða aðra til þess jafnframt. Allar þvingunarráðstafanir eru aðeins til ills eins og hafa oftast öfug áhrif við það, sem þeim er ætlað að hafa. Með því vinnst tvennt. Félagið kemst hjá óþægilegum skakkaföllum og þið, sem óánægð eruð, náið ykkur niðri, án þess að það verði á kostnað annarra, sem gjarna vilja standa utan við þetta mál. Ég tel ungmennafélagið of nytsamt og of nauðsynlegt, til þess að það sé eyðilagt með þessu brölti, sem því kemur ekkert við. Ungmennafélagsskapurinn á að geta rúmað ólíkar skoðanir og látið gott af sér leiða, án tillits til þess, hvaða tru menn játa. Menn þurfa aðeins að hafa þann manndómsneista í sér, sem nauðsyn- legur er til þess að geta látið gott af sér leiða. Hin sanna trú er hin raunverulega breytni mannsins í daglegu lífi, en ekki lítt hugsað og fávíslegt orðagjálfur. Síðasti ræðumaður sagði, að menn yrðu að hafa kjark til þess að horfast í augu við nátttröllin. Þar er ég á sama máli. En með öllu þessu frumhlaupi sannar síð- asti ræðumaður, að það er hann og hans fylgismenn, sem brestur þann kjark, sem til þess þarf. Þetta úrræði þeirra er ekki annað en vesall flótti. Það er síður en svo, að þessar aðgerðir þeirra nægi til þess að ganga á milli bols og höfuðs á þjóðkirkjunni. Hún mun lifa eftir sem áð- ur. Með þessu eru þeir einmitt að tor- velda þá möguleika, sem kunna að vera fyrir hendi til þess að bæta hana, til þess að hreinsa úr henni sorann, til þess að skapa úr henni skíran málm, sem eitt- hvert verulegt verðmæti sé í. Formaðurinn var farinn að verða ugg- andi um sinn málstað. Hann fann það, að hann hafði misst hin góðu tök á áheyr- endunum, sem hann hafði haft til að byrja með. Til þess .að eiga ekki á hættu að tapa meiru, taldi hann réttast að tak- marka umræðurnar og leiða málið til lykta eins fljótt og unnt væri. Ég geri ekki ráð fyrir, að frekari um- ræður séu nauðsynlegar, sagði hann. Tíminn er líka svo liðinn og fleiri mál eftir á dagskrá. Við höfum komið okkur saman um að bera fram tillögu í þessu máli. Hún er alveg að verða fullsamin. A meðan formaðurinn og samherjar hans luku við að semja tillöguna, reis úr sæti sínu Finnur gjaldkeri Brúarkirkj- unnar sáluga, sá sem mest hafði þybbazt gegn kirkjubyggingarmálinu. Þá sjaldan hann reis upp til þess að halda ræðu, lögðu menn hlustir við, því að hann var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.